Nýjar kvöldvökur - 01.05.1917, Blaðsíða 10

Nýjar kvöldvökur - 01.05.1917, Blaðsíða 10
104 NÝJAR KVÖLDVÖKUR. Dossow hafði eingöngu tekið þátt í þessari hátíð, til þess að forðast umtal það, er af því mundi leiða, ef hann hafnaði boðinu. En það var hans fasti ásetningur að vinna bug á ást þeirri, er hann bar í brjósti til Elísabetar, og honum fanst það eins og próf á staðfestu sinni að verða nú að vera heilan dag með henni. Pau voru nú komin til skógar og riðu í gegnum hann. Svalinn í skóginum hresti bæði menn og hesta eftir reiðina í sólskinshitanum Skiftu menn sér nú í flokka og var ákveðinn staður, þar sem allir skyldu hittast. Elísabet og Willy riðu skógargötu eina mjóa. Riðu þau svo nálægt hvort öðru, að reiðkápa hennar straukst við stígvél hans, eitin- ig veitti honum erfitt að halda hinum niður- hangandi skógargreinum svo Iangt frá henni, að þær kæmu ekki við andlit hennar. »Hafið þér ekki kníf á yður,« sagði hún, »svo þér getið skorið eina grein handa mér. Eg þarf að hafa eitthvað til þess að reka burtu flugurnar með, sem ónáða hestinn minn.« WiIIy tók upp úr vasa sínum skrautlegan damaskusrýting, sem hann átti, og skar grein af bækilré einu og rétti henni greinina. »Petta er fallegur rýtingur.c sagði Elísabet. »Má eg líta á hann?« Hann rétti henni rýtinginn. »Pað gaf mér hann einusinni .Múhameds- trúarmaður einn, sem eg hafði gert lítilsháttar greiða. Lítist yður rýtingurinn góður, gerið þér mér gleði með því að þiggja hann af mér.« »Hjartans þakkir fyrir,« sagði hún. Hún festi hann við úrfesti sína og stakk honum undir beltið. Aldrei hafði henni þótt jafnvænt um neina gjöf. f*au riðu nú sem leið lá gegnum skóginn. Er þau höfðu riðið um hríð, stöðvaði Elísa- bet hest sinn og sagði: »Pessi staður þykir mér fallegastur hér í skóginum og hér hefi eg dvalið margar yndis- stundir.* Pau voru nú komin fram til sjávar. Bratt- ar brekkur, vaxnar bækitrjám, lágu þar fram að hafinu. »Pykir yður ekki vera hér fagurt um að litast?« sagði Elfsabet og ljómaði gleðin úr augum hennar. »Jú,« svaraði hann og hallaði sér áfram í hnakknum og andaði að sér sæloftinu. »En fegurst af öllu þykir mér hafið, sem er heim- ili mitt. Innan skamms fer eg þangað aftur og þá líður langur tími þangað til eg yfirgef það.« »Pér ætlið þó ekki að yfirgefa okkur og fara burtu?« spurði Elísabet um Ieið og hún beygði sig niður að makkanum á hestinum og klappaði honum á hálsinn. »Vill faðir yðar leyfa yður að fara strax aftur?« »Honum er það fullkunnugt, að þetta er hlutskifti sjómanna. Honum er einnig kunnugt um ætlun mína og við erum alveg sammála. Eg hefi sótt um leyfi til þess að verða sendur til Austur-Asíu og geri ráð fyrir að leggja bráðlega af stað.« »Er þetta ófrávílcjanleg ætlun yðar?« »Já, það er alveg fast ákveðið,* og svipur- inn á andliti hans og auguatiilit Iýstu því greinilega, að honum var alvara. Elísabet föln- aði. Var það af því hún hafði svo lengi hugs- að um, hvern mann hann hefði að geyma? Eða var það éf til vill af því, að síðustu vik- una hafði hún ávalt hugsað um þessi augu, sem höfðu sagt henni greinilegar en hægt var að skýra frá í orðum, að hann elskaði hana? Hafði hún þessvegna verið svo kát í dag ? Og nú ætlaði hann að fara burtu, jafnhreykinn, rólegur og ánægður með sjálfan sig og þegar hann kom þangað. Hún sneri hesti sínum við. »Hvað er orðið af hinu fólkinu?« spurði hún hvatlega. »Við verðum að reyna að ná því.« »Pá verðum við að fara sama veg til baka aftur,« svaraði Willy, »það er ofmikil áhætta að ríða hér fram með brekkunum.* »Nei,« sagði hún. »Eg hefi oft gert það áður, og með því móti styttir maður sér mik- ið Ieið.« Hún sló í hestinn með keyrinu og svo riðu þau áfram yfir þúfur og stórgrýti., Hún

x

Nýjar kvöldvökur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.