Nýjar kvöldvökur - 01.05.1917, Blaðsíða 23

Nýjar kvöldvökur - 01.05.1917, Blaðsíða 23
KYNJALYFIÐ. 117 ilm út frá sér. Hann sá nu, að hann var kom- inn inn í litla gotneska kapellu, sem eins og bústaður einbúans var höggvinn inn í berg, en sá var munurinn, að allur frágangur á kap- ellunni var listaverk, í staðinn fyrir að hroð- virknislega hafði verið gengið frá að höggva út bústað einbúans. Hvelfing kapellunnar var meistaralega höggvin út og skreytt, og með- fram hliðunum voru svipfagrar súlur, sex hvoru megin, en í stúkunum milli þeirra voru högg- nar myndir af herrans tólf postulum. í öðrum enda kapellunnar stóð altarið. Bak við það hékk dýrðlegt tjald úr persnesku silki útsaum- að með gullþræði. Ætla mátti að þetta væri fortjald fyrir einhverjum helgum dómum, sem þessi skrautlega kapella hefði verið gerð til að geyma. Riddarinn þóttist viss um að þessu væri þannig varið, og hann gekk fyrir altarið kraup þar niður og baðst fyrir. Skamma stund hafði hann beðist fyrir, þeg- ar hann truflaðist við það, að hið dýrðlega for- tjald dróst til hliðar eins og af sjálfu sér. í stúku þar á bak við var skápur úr íbenvið og í honum stóð lítið sýnishorn af gotneskri kirkju mjög haglega geit. Hann horfði undrandi á þetta, én þá lukust þar upp tvær léttar vængjahurðir og um leið heyrði hann yndis- Iegan kvennasamsöng sem byrjaði sálminn: »Dýrð sé guði í upphæðum«. Um leið og söngurinn dó út lokuðust flauelsdyrnar og tjáldið dróst fyrir. Söngurinn hafði mikil áhrif á riddarann og hann kraup niður og iauk með andakt við bæn sína. Svo stóð hann upp og fór að líta eftir einbúanum. Hann sá hann niðurlútan við kap- elludyrnar og leit út fyrir að hann þyrði ekki inn fyrir þröskuldinn. Blæjuna hafði hann enn þá um höfuðið. Riddarinn gekk til hans til þess að yrða á hann, en einbúinn varð fyrri til og mælti í hálfum hijóðum: íDveldu hér lengur, þú hamingjunnar barn, sem mátt skoða þessar dásemdir, öll dýrðin er eigi enn á enda.« Svc reis hann á fætur og iokaði dyrunnm að sér, hurðin féll svo vel að riddarinn naumast gat séð hvar hún var. Skotinn var nú orðinn einn í kapellunni án annara vopna en tígilknífsins; þó var hann öruggur, ókvíðinn og einráðinn í því að taka því með stillingu er að höndum bæri og gekk með rósemi um í kapellunni fram eftir nótt- unni. Undir morguninn heyrði hann að silfur- klukku var hringt. Hvaðan klukknahljóðið kom gat hann eigi fullkomlega áttað sig á. Ressi hringing var bæði dularfull og hátíðleg þar í næturkyrðinni og riddarinn dró sig inn í horn í kapellunni gagnvart altarinu til þess að bíða þar eftir því, sem hringing þess boðaði. Lengi þurfti hann ekki að bíða, því brátt dróst silkitjald til hliðar og skær kvennasam- söngur barst honum til eyrna. Pað var morg- unsálmur katólsku kirkjunnar, sem svo yndis- lega hljómaði fyrir eyrum hans. Söngurinn nálgaðist og vængjahurðirnar opnuðust og inn í kapelluna gengu nú fyrst fjórir hvít- klæddir kórdrengir með bera handleggi og fætur, báru þeir reykelsisker sem ilminn lagði frá um alla kapelluna, næst þeim komu sex syngjandi ungmeyjar, svört blæja og axlaband gaf til kynna að þær voru nunnur og höfðu unnið heitið, á eftir þeim komu aðrar sex meyjar með hvítar blæjur sem benti á, að þær voru klaustursystur, sem um tíma dveldu í klaustrinu til að kynnast lífinu þar og kven- leguin dygðum. t*ær fyrnefndu báru stóra rósa- kransa, en þær síðari smærri kransa fléttaða af rauðum og hvítum rósum. F*ær gengu hring- inn í hring í kapellunni í hátíðlegri skrúðgöngu og veittu Kenneth enga eftirtekt, enda þótt þær gengu svo nærri honum að jafnvel klæði sumra þeirra snertu hann. Kenneth riddari var nú í engum vafa um, að hann væri kominn hér í klausturkapellu, þar sem frómlundaðar kristnar meyjar fyr og nú þjónuðu drotni. Mörgum slíkum klaustrum hafði verið eytt eftir að Múhameðsmenn náðu yfirráðum yfir Palestínu; en nokkur voru þó enri við lýði. Klausturfólkið hafði í sgmum þeirra keypt sér rétt til þess að fá að vera þar óáreitt og þjóna guði, og á stöku stöðum höfðu sigurvegararnir verið svo veglyndir að

x

Nýjar kvöldvökur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.