Nýjar kvöldvökur - 01.05.1917, Blaðsíða 40

Nýjar kvöldvökur - 01.05.1917, Blaðsíða 40
134 NÝJAR KVÖLDVÖKUR. hvernig hún fór að lifa. — En hún var mönn- um einkar hvimleið vegna þess, að hún hafði þann ágalla að betla og var oft frek og nær- göngul í þeim efnum. En þó höfðu ménn mestan ímugust á henni fyrir þá orsök, að hún bar slík óþrif á sér, að enginn mátti koma nærri henni, svo hann bæri þess ekki greini- legar menjar. Hún fékst aldrei til þess að dvelja svo lengi í stað, að hægt væri að þrifa hana rækilega til. En hún var gengin mönnurn úr greipum áður en menn vissu af. Guðrún hafði farið svona við lát unnusta síns. Hafði hann farið í sjóinn, hún orðið geggj- uð á skapsmunum og aldrei náð sér síðan. — Guðrún dró sig að kirkjudyrunum og bland- aði sér í mannfjöldann. Pó vildi enginn koma mjög nærri henni. Hún byrjaði strax á því að biðja að gefa sér, fáeina aura, leppdulu, matarögn og hitt og þetta, sem hún taldi upp. Röddin var há og skar í gegnum mann. Betli hennar var ekki svarað. Sumir sögðu henni að þegja. Aðrir, að hún ætti að dragn- ast burt. Og enn aðrir, að hún ætti að biðja hreppsnefndina. Þó söfnuðust menn utan um hana og mynduðu stóran hring, og létu hana hökta innan í honum. Ef hún ætlaði að snerta einhvern skaust hann burt. En við það varð hún enn áfjáðari og ákafari. Loks var hún orðin svo þreytt á þessum snúningum, að hún dró sig að kirkjudyrunum og settist á steintröppuna. Augnabliki síðar kom séra Björn út úr kirkj- unni. Honum hnykti dálítið við, þegar hana sá Guðrúnu sitja þarna. Samt hélt hann áfram. En um leið og hann gekk r.iður, tók Guðrún þétt utan um fótinn á presti svo hann stoppaðist. »Ó, lofið mér að snerta fótinn á btessuð- um guðsmanninum! Lofið mér að faðma hann að mér! Rað styrkir mig, þreyttan vesalinginn.* Guðrún vafði handleggjunum um fót prests og lagði grátt, sneplótt höfuðið á hnéð hans eins og barn, sem leggur kollinn í skaut móður sinnar. En prestur var því líkur útlits sem fóturinn væri að brenna. Hann vissi ekki hvað flyttist af Guðrúnu á hann. »Sleppið þér, Guðrún mín, eg þarf að hiaða mér! Sleppið þér! Sleppið þér! Heyrið þér ekki manneskja!* Rödd prestsins var svo vandræðaleg og biðj- andi, að honum leið sýnilega ekki vel. En Guðrún slepti ekki. Hún vafði sig enn fastara upp að presti. »Gefið mér einn fermingartoll, — hálfa — eina krónu — fáeina aura — eitthvað. Eitthvað látið þér það heita, sjálfur guðsmaðurinn á sjálf- an hvítasunnudaginn.* Séra Björn leit bænaraugum á mannfjöldann í kring, sem altaf varð meiri og meiri. En enginn hreyfði sig. Sumir brostu. Aðrir stikluðu fram og aftur, kendu í brjóst um prestinn og langaði til að hjálpa honum, en þorðu ekki. Reir voru þó f sparifötunum. En til allrar hamingju fyrir prestinn bar vinnumann hans þar að. Hann hrópaði til hans: »Blessaður Páll, losaðu mig við kerlingar- skömmina.* Vinnumaðurinn gekk til þeirra, en stanzaði í hverju spori. Hann var auðsjáanlega mjög lítið ánægður með þessa fyrirskipun. Hann tók á Guðrúnu eins og hún væri baneitruð eða einhver vítisvél, sem gæti sprengt alt í loft upp, ef komið væri við hana. Hann losaði handleggina utan af fótlegg prestsins. En um leið slepti hann henni svo snögt og hrana- lega að hún steyptist áfram niður af tröppunum. Krakkarnir skellihióu. Sumir aumkuðu kerl- ingaraumingjann, að fá þessa byltu. En enginn hreyfði sig til þess að rétta hana við og reisa hana á fætur. En Guðrún stundi og hljóðaði. Hún ætlaði hvað eftir annað að standa á fætur, en brast mátt tii þess. Sutnir fóru að draga sig frá og bak við hina. Þá hljóp Tumi fram úr hópnum. Hann lók mjúklega utan um Guðrúnu og

x

Nýjar kvöldvökur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.