Nýjar kvöldvökur - 01.05.1917, Page 48

Nýjar kvöldvökur - 01.05.1917, Page 48
142 NÝJAR KVÖLDVÖKUR. Pótt við hefðum efldan arm enginn má við sköpum sporna. Bezt að dylja blakkan farm, bíða svo, ef kynni að morgna. Yfir landsins hlíð og hól heldur vor á norðurleiðir. Birtugjafi, blessuð sól, beygir fyrir norðurpól. Veltur áfram æfihjól, ýmist veginn þrengir, greiðir. Rrá og dáð, sem æskan ól, út á sviðið hugan seiðir. Hallgr. Jónasson. Bókmentir. Vinnan. Eftir Guðm. Finnbogason Dr. phil. Rvík. 1917. Bók þessi er einhver hin nýstárlegasta, sem út hefur komið á ísl. tungu nú lengi. Vér höfum vanizt því fyrirfarandi að ætla að kafna undir Ijóðakveðskap og búfræði, fornbréfum og ættartölum, og hefur sumum þólt ærið litið til- koma eins og gengur, og ættu þó búfræðisrit- in að vera vinsæl meðal bænda og búaliðs, meðan unga fólkið svalar sér á Kapitólu og Cymbelinu fögru. En nú kemur ný bók til sög- unnar, sem kveður við alt annan tón en nokk- uð af þessu, þó að óneitanlega verði að telja hana búfræðinni skyldasta. Rað er kunnugt að höf. fékk ríflegan styrk á alþingi 1915 til þess að stunda svo nefnd vinmmsindi, nýja grein praktískrar heimspeki, og styðja að út- breiðslu þeirra hér á landi. Oerðu sumir mikið skop að þessum vinnuvísindum hér á iandi, og þeir auðvitað mest, er litla sem enga hugmynd höfðu um vinnu, eða þá þóttust e:nfærir um að vinna með sínu lagi og þóttust ekki þurfa neina heimsspekinga með landssjóðsstyrk til þess að kenna sér verkatökin. Svo hef eg ekki heyrt teljandi talað um þetta mál. En höf. fór til Ameríku f fyrra og kynti sér vinnu- visindin þar, og svo aðra vísindamenn og sál- arfræðinga, eins og sjá má á heimildarskrá hans aftan við bókina. Svo hélt hann fyrirlestra við háskólann um þetta efni í vetur, og voru þeir síðan prentaðir. Bókin er rituð svo létt og alþýðlega, að engum meðalmanni, þóít lítillar nrentunar hafi notið, getur talizt um megn að skilja hana til hlítar. Og þar er drepið á svo margt, sem menn hafa ekki tekið eftir, að eg skil ekki í öðru, en það fari svo fyrir einhverjum öðrum en mér, að menn furði sig á því, að menn skuli ekki hafa tekið eftir því fyrri en þeim var bent á það. Bókinni er skift í 10 kafla. Er í fyrsta kaflanum gerð glögg grein fyrir eðli erfiðisins, hvernig líkaminn framleiði það, og hvaða áhrif þar komi til greina; en þau eru bæði mörg og margbrotin. í öðrum kaflanum er lýst hinni eðlilegu afleiðingu erfiðisins, og lýst merkilegum tilraunum, er gerðar hafa verið til þess að auka vinnumagnið án þess að of- bjóða líkamanum eða auka þreytuna að mun. í þriðja kaflanum er lýst kappinu, og þykir mér sá þáltur einhver liinn merkasti kafli bók- arinnar, og virðist það mál vera furðu vel leyst, hvernig sem á það er Iitið. Siðari hlutinn er svo vinnugleði, vinnulaun og margt hvað ann- að sem að vinnunni lýtur. Bókin er fjörugt og skemtilega rituð eins og alt sem Guðmundur Finnbogason ritar, og engu síður skemtileg af lestrar en góð skáldsaga, auk þess sem hún hefur margan þarfan fróðleik að geyma. Væri æskilegt að sem fleslir næðu til að lesa hana, og ekki sízt þeir er stunda líkamlega vinnu, því að hún gæti orðið þeim að miklu góðu. Verst er að dýrtíðin veldur því að bókin er nokkuð dýr eftir stærð, og er hætt við að það standi nokkuð í vegi fyrir þeirri útbreiðslu, sem hún á skilið. Frakkland. Eftir Kr. Nyrop. Þýtt hefur Guðm. Guðmundsson skáld. Rvík. 1917. Kver þetta hefur ritað prófessor í frönsku við háskólann í Khöfn, til þess að gera mönn- um Frakkland betur kunnugt en áður hefur ver-

x

Nýjar kvöldvökur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.