Nýjar kvöldvökur - 01.04.1956, Side 6

Nýjar kvöldvökur - 01.04.1956, Side 6
BUNAÐARBANKI ÍSLANDS Austurstrœti 5 — Reykjavík — Sími 81200. AUSTURBÆJARÚTIBÚ, Laugavegi 114, sími 4812. ÚTIBÚ Á AKUREYRI, Strandgötu 5, sími 1167. Bankinn er sjálístæð stoínun, undir sérstakri stjórn, og er eign ríkisins. í aðalbankanum eru geymsluhólf til leigu. — Trygging fyrir innstæðufé er ábyrgð ríkisins, auk eigna bank- ans sjálfs. Bankinn annast öll innlend bankaviðskipti. Tekur á móti fé í sparisjóð og hlaupareikning. ♦ -♦ AKUREYRI - höfuðstaður Norðurlands nefnist bók ein, sem nýkomin er í bókaverzlanir. Er þetta inyndabók frá Akureyri, sams konar og Island í myndum og Reykjavík fyrr og nú. Hefit hún að geyma rúmar 80 myndir, er flestar taka yf- ir eina síðu í bókinni. Flestar eru myndirnai tekn- ar í bænum, en einnig eru jiar myndir frá stór- býlum og sögustöðum í Eyjafirði og frá nokkrum slöðum í Þingeyjarsýslu, er ferðamenn um Norð- urland leggja helzt leið sína um. Myndirnar eru flestar teknar árið 1948 af Edvard Sigurgeirssyni, en einnig eru þar eldri myndir, eftir Hallgrím Ein- arsson og fleiri. Útgáfuna hefur Steindór Steindórsson, mer.nta- skólakennari, annazt, og ritar hann greinargóðan inngang að bókinni, þar sem lýst er legu og skip- an bæjarins og umhverfis hans, menningar- og fé- lagslífi og atvinnuháttum bæjarbúa auk annáls yfir helztu atburði í sögu bæjarins frá 1580-1954. Þcssi inngangur er þar einnig í enskri þýðingu Sigurðar L. Pálssonar, menntaskólakennara. Útgáfan hefur verið nokkuð lengi á uppsiglingu, og eru því ekki myndir í bókinni yngri en 5-7 ára (að einni undantekinni). Þrátt fyrir það er bókin hin skemmtilegasta eign, myndirnar vel teknar. og fylgir þeim texti á 3 tungumálum: íslenzku, ensku og dönsku. Bókin er handhæg og smekkleg vinargjöf og mun eflaust verða keypt sem slík. Út- gefandi er Isafoldarprentsmiðja h.f., en framkv.- stjóri hennar nú er Pétur Olafsson (Bjömssonai ritstjóra). Verð bókarinnar er 95 krónur, og verð- ur það að teljast mjög hóflegt. ísafoldarprentsmiðja h.f.

x

Nýjar kvöldvökur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.