Nýjar kvöldvökur - 01.04.1956, Qupperneq 31
N.Kv.
63
Charles Nordhoff og Jgmes Norman Hall:
Pitcairn-eyjan
Halldór Ólafsson þýddi.
Moetna náfölnaði. Eftir langa þögn sagði
hún: — Guðirnir hafa gleymt okkur. Það
hvílir bölvun yfir þessu ógæfusama landi.
Nanai stóð niðurlút. Moetna lagði höndina
á herðar henni og sneri sér aftur að Tau-
rua. — Hver drap Tetahiti?
— Quintal hefur drepið þá alla.
— Á Young þá engan þátt í því?
— Nei.
Augu Moetna fylltust tárum, þegar hún
leit á Taurua.
— Ertu viss um það?
— Alveg viss. Eg sver það.
Taurua kraup niður við hlið Christians.
— Hitasóttin getur riðið honum að fullu,
sagði hún við Moetna. Við verðum að fara
með hann heim til Young.
— Farðu heim til Maimiti, sagði Moet-
na. — Við skulum koma með hann.
Þegar hún var farin, sátu báðar konurn-
ar kyrrar um stund. Síðan reis Moetna á
fætur og gaf Nanai merki um að taka undir
annan endann á börunum. Þær báru byrði
sína léttilega og gengu þegjandi eftir vegin-
um heim til Young.
Young var einn í herberginu með Balha-
di þegar þær komu. Alexander Smith lá
meðvitundarlaus með lokuð augu í rúmi í
næsta herbergi. Þó að hann hefði misst mik-
ið blóð, voru kinnar hans rauðar af hita-
sóttinni. Balhadi sat á stóli við rúmið. Þeg-
ar hún heyrði fótatak fyrir utan dyrnar, leit
hún upp.
Án þess að heilsa báru konurnar börurn-
ar inn í stofuna, settu þær niður við rúmið
á mód Smith og lyftu meðvitundarlausum
líkama Christians upp í það. Young stóð á
fætur um leið og þær komu inn og ætlaði að
fara að segja eitthvað, er hann leit framan
í Moetna. Hún gaf Nanai þegjandi merki
að koma á eftir sér út í gegnum dyrnar.
Young flýtti sér yfir gólfið til Christians.
Hann hlustaði eftir andardrætti hans,
hneppti skyrtunni varlega frá honum og at-
hugaði sárið. Þegar hann leit upp, mættu
augu hans óttaslegnu tilliti Balhadi.
— Heldur þú, að hann lifi? spurði hún.
— Hann verður að lifa, svaraði hann
lágri röddu. Hann verður og hann skal.
Fimmtándi kafli.
í febrúarmánuði árið 1808 sigldi ame-
ríska seglskipið Topaz fyrir hægum austan
vindi í suðaustur. Skipstjórinn, Mayhew
Falger var einn af þeim amerísku skip-
stjórum, sem höfðu siglt fyrir Kap Horn og
hætt -íér inn á siglingaleið Spánverja við
strendur Ameríku. Hann hafði meira að
segja freistað gæfunnar á hinu volduga og
lítt þekkta Suðurhafi í leit að selskinnum,
hvallýsi og viðskiptamöguleikum.
Topaz var útbúin eins og freigáta. Hún
var að vísu nokkuð lítil en leit út eins og
skip, sem hefur verið marga mánuði í för-