Nýjar kvöldvökur - 01.04.1956, Page 12

Nýjar kvöldvökur - 01.04.1956, Page 12
44 DANSAR N.Kv. máls, en gripu í þeirra stað langspil og hljóðpípu af hillu. Hið nýja form orkaði á menn sem endurlausn, sólskin og sunnan- vindur. IV. Oftast mun sá háttur hafa verið á hafð- ur, að forsöngvari söng sjálft kvæðið, en allt dansfólkið tók síðan undir og söng við- lagið. Viðlög þessi voru oftast fegurstu hlutar kvæðisins, gædd skáldlegum þrótti og yndisleik, oft glaðvær, en stundum tregafull. Vil ég nú vitna til nokkurra við- laga til að sýna fjölljreytni þeirra og þann andhlæ, sem þau búa yfir. Það skal tekið fram, að sum viðlög voru notuð með mörg- um dönsum. í Jónsbókarhandriti er þetta stef neðan- máls: Hind á skógi, riddarinn veiðir hind á skógi. Á spassíu annars Jónsbókarhandrits er þessi vísa: Blessi drottinn berin á því lyngi. Hart og lengi harpan mín syngi. Ari lögmaður Jónsson kvað vísu þessa við raust, er hann drakk fanga sínum Mar- teini biskupi til: Svo er mér gott og gleðisamt, því veldur þú. Mig langar út í lundinn með þér jómfrú. Gleði og liörpusláttur: Vítt flýgr valrinn yfir skóga. Eg kann, ef ég vil, slá dans yfir lands múga. Stígum fastar á fjöl, spörum ekki skó; guð má ráða, hvar við dönsum önnur jól. Dunar lítt, þótt dansi hin hvíta dúfan ein. Hér komst ekki gleðin á, því nóttina syrtir; Vér skulum dansa betur, þegar birtir. Mansöngur: Hýr gleður hug minn hringa gátt, þegar ég þig finn, og þá er mér kátt. Bíddu mín við Bóndahól bauga lofnin svinna. Þar er skjól, og þar vil ég þig finna. Hirði ég aldrei, hver mig kallar vóndan. Heldur kyssi ég húsfreyjuna en bóndann. Að stöðva lax í strangri á og stikla á hörðu grjóti, eins er að binda ást við þá, sem enga kunna á móti. Sú er ástin heitust, sem bundin er meinum, er því bezt að unna ekki neinum. Gamlir og ungir gifta sig gautar rómu tjalda; engin vill þó eiga mig; eitthvert skollans ólán má því valda.

x

Nýjar kvöldvökur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.