Nýjar kvöldvökur - 01.04.1956, Blaðsíða 43

Nýjar kvöldvökur - 01.04.1956, Blaðsíða 43
N Kv. PITCAIRN-EYJAN 75 Taurua heim til Christian, til þess að tala við konu mína. Hún sagði henni að frú Christian væri svo óróleg, að það væri því nær alveg ómögulegt að halda henni í rúm- ínu. Allir voru ásáttir um að hún skyldi fá að vita sannleikann. Herra Young hafði oft orð á því eftir þetta, að hann vildi heldur standa augliti lil auglits við böðulinn. en að lifa þennan morgun upp aftur. Þau reyndu að segja frú Christian sannleikann með eins mikilli varúð og liægt var, en hún skyldi strax hvað það var, sem átti að leyna fyrir henni. Hún sté af sænginni, fleygði kápu yfir lierðar sér, tók barnið í fangið og gekk út, án þess að mæla orð. Þegar hún kom heim lil okkar, gekk hún beint að rúminu og gaf Hutia merki um að víkja til hliðar. Herra Christian lá með lokuð augu og mikla hitasótt. Hutia tók barnið og konan hans settist við höfuðlagið til þess að geta skipt sem oftast um köldu bakstrana á enni hans. Þér vitið hvaða áhrif svona snögg geðshræring getur haft á konu, sem líkt stendur á um og frú Christian. Um kvöldið voru brjóst hennar orðin alveg þurr. Þegar barnið grét, mataði Balhadi það á sætri mjólk úr kokoshnetum, sem kölluð er ono. í heilt ár fékk barnið ekki aðra fæðu, en þreifst þó vel af henni. Alla þessa nótt og næsta sólarhring, lág- um við herra Christian, þar sem við vorum komnir. Herra Young og konurnar hjúkr- uðu okkur. Herra Young hafði sagt frú Christian hvað fyrir hafði komið. Þegar hún hafði heyrt alla málavexti, sagði hún ekki orð. Það mun hafa verið að morgni hins þriðja dags, sem hitasóttina linaði, og eg lauk upp augunum. Þar lá ég heima hjá Young máttvana eins og lítið barn og alvarlega særður. Eg gat ekki hreyft vinstri öxlina. Þegar ég reyndi að hreyfa mig fann ég til sárra þrauta. Vegna hitasóttarinnar, var ég ákaflega rugl- aður, svo að það leið góð stund, áður en ég áttaði mig. Smám saman komst ég til meðvitundar. Eg mundi þegar Jenny kom til mín í Larogarðinum, hvernig ég klifraði upp að geita-húsinu í þeirri von að mæta herra Young þar, hvernig ég faldi mig hjá veginum í Aðaldalnum, til þess að reyna að ráða niðurlögum einhvers blökkumanns- ins og náði í byssu hans. Þegar liðið var að sólsetri, skreið ég af stað áleiðis til pisanggarðs herra Young, til þess að reyna að ná í eitthvað að borða. Síðan minnir mig að ég hafi séð Te Moa og Nihau með höfuð Mills við belti sér, koma í ljós. Eg man að ég fékk skot í öxlina og féll til jarðar. Síðan reyndi ég að standa upp og hlaupa. Ég man einnig óljóst, að Jenny kom lil mín aftur, en svo hvarf mér alveg ver- öldin. Þegar Jenny hitti mig í tarogarðin- um, sagði hún mér að fjórir menn væru dauðir, það var allt, sem ég fékk að vita. Rúmið mitt stóð við norðurhlið herberg- ísins undir opnum glugga. Þetta var kyrr- látur morgunn, glaða sólskin og engin and- blær. Sumstaðar sást á milli trjánna út á hafið, sem var spegilslétt. Svo mikill frið- ur og fegurð var umhverfis okkur, að eríitt •var að sætta sig við þá tilhugsun, að nokkrir menn skyldu hafa getað framið ægileg morð á slíkum stað. Eg beit á jaxlinn og snéri mér að rúminu. í rúminu, sem stóð við þilið andspænis mér, sá ég mann, sem ég gat ekki séð hver var. Frú Christian sat við rúmið hans 02: snéri baki að mér. Eg gat hvorki séð andlit Lennar né hans. Maðurinn hreyfði sig ekki, svo að ég hélt að hann væri dauður. Taurua og kona mín voru að gefa litlu barni að borða og herra Young stóð hjá þeim. Ég hallaði á hann. Balhadi og hinar konurnar
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Nýjar kvöldvökur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.