Nýjar kvöldvökur - 01.04.1956, Síða 47

Nýjar kvöldvökur - 01.04.1956, Síða 47
N.Kv. PITCAIRN-EYJAN 79 lil bardaga og blóðsúthellinga meðal kven- fólksins, ef Maimiti og Taurua hefðu ekki komið í veg fyrir það. Þær vissu að Moetna og Nanai höfðu engan þátt átt í morðunum og voru eins saklausar og þær sjálfar. Frú Ch'ristian bað herra Young að fara til þeirra og sækja þær, ef hann gæti. — Skilaðu til þeirra að koma mín vegna, Young, sagði hún. Ollum konunum þótti vænt um Young og gerðu allt, sem hann óskaði eftir. Klukkustund síðar kom hann aftur og háð- ar konurnar með honum. Hann fór inn á undan, en þær stóðu utan við dyrnar. Þér Lafið séð Moetna herra, ef til vill getið þér hugsað yður hana sem unga konu. Ég hef séð þúsundir kvenna í eyjunum hér í Kvrra- hafina, en engar, sem voru jafningjar Mo- etna að glæsileik og fegurð. Það var ekki af hræðslu við Prudence, Hutia eða hinar konurnar, að hún lét ekki sjá sig fyrr. En hún vissi að Quintal hafði drepio mann hennar og var hrædd um að hún gæti ekki haft taumhald á hefnigirni sinni. Að vísu var hún ekki eins sterk og bann, en hatrið brann í brjósti hennar, og það var hugsanlegt, að hún hefði ráðizt á hann og drepið hann. Nanai var veiklyndari. Hún var líka af göfugam ættum, það þurfti ekki annað en að líta á hana, til þess að sjá muninn á henni og konum eins og Jenny og Hutia, en hún var góðlynd og kurteis. Hún þurfti að eiga einhvern vin, sem hún gat leitað athvarfs hjá, og það var lán fyrir hana að njóta verndar Moetna. Ég gæti hugsað mér að hinum konunum, sem voru utan við sig ai harmi og reiði eftir morðin á mönnum þeirra, hefði getað komið til hugar að ráð- ast á Nanai og drepa hana, ef Moetna hefði ekki staðið við hlið hennar. Eins og áður er sagt, biðu þær við dvrn- ar. Um leið og Maimiti sá þær, gekk hún til þeirra, tók í hönd þeirra og leiddi þær inn I herbergið. — Moetna, sagði hún. — Það, sem menn okkar hafa gert, verður ekki bætt. Það er hugsanlegt að maðurinn þinn hafi drepið manninn minn, en nú eru þeir báðir dánir. Nanai .... Christian og Teta- hiti voru vinir. Við höfum alltaf verið eins og systur. Ég ber innilegan vináttuhug til ykkar beggja. Viljið þið búa hér með mér. Ég get endurtekið orðin, en ég get ekki lýst hvernig þau voru sögð. Þér munið aldrei kynnast konu, sem er jafn blíðlynd og ástúðleg og frú Christian. Hún hafði lagra. djúpa rödd, næstum því eins og karl- maður. — Já, ég vil það, sagði Moetna. Svo grétu þær allar þrjár og vöfðu hver aðra órmum. Það gladdi mig að vera þarna viðst iddur. Það var í fyrsta sinn, sem ég sá frú Christian gráta. Jafnskjótt og ég gat farið á fætur, spurði hún mig, hvort hún mætti búa í mínu húsi og ég vildi flytja yfir í hennar hús. Mér var undir eins Ijóst, hvað fyrir henni vakti. Hún þorði ekki að koma aftur inn í húsið, þar sem hún bafði búið með herra Christ- ian. Síðan flutti ég og konan mín þangað ásamt Hutia og Prudence, sem ætluðu að búa hiá okkur. Herra Young flutti i hús Mills ásamt Taurua og Jenny. Quintal og Mc Coy voru áfram, þar sem þeir höfðu áður verið ásamt konum sínum og Sus- annah. Sár mitt gréri seint. í lok októbermánað- ar gat ég staulazt um herbergið, en ég gat ekkert gert með vinstri hendinni fyrr en jeið að jólum. Ég gat lítið haft fyrir stafni, svo að ég var mest innandyra. Þetta voru rólegir tímar, en þungbærir, eins og ég hef áður sagt. Quintal og Mc Coy komu aldrei iil mín, en því undi ég vel, þar sem mér var illa við þá báða. Ég vissi vel, að það

x

Nýjar kvöldvökur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.