Nýjar kvöldvökur - 01.04.1956, Blaðsíða 53

Nýjar kvöldvökur - 01.04.1956, Blaðsíða 53
N. Kv. PITCAIRN-EYJAN 85 Við vorum allir sammála. Quintal lofaði bót og betrun jafn hátíðlega og við hinir. Við unnum eið að því, að bragða ekki fram- ar meira vín, og gengum til svefns með góða samvizku í fyrsta skipti í mörg ár. Héðan af átti að ríkja ró og friður á Pit- cairn-eyjunni. Átjándi kafli. Nú ætla ég að fara fljótt yfir sögu næstu þriggja ára. Það er tímabil, sem ég vil helzt ekki þurfa að rifja upp. Eg sagði, að ég skyldi segja satt frá öllu, sem gerðist, og það hef ég gert, en þér kærið yður vafa- laust ekki um, að sagt sé frá öllum smá- atriðum. Um þessi þrjú ár er í stuttu máli ekki amiað að segja en að ástandið fór stöð- ugt versnandi. Áður en margir dagar voru liðnir, höfðum við rofið heit okkar og svar- daga. Maimiti hafði fyrir löngu flutt burt með börn sín þrjú og Moetna og Nanai fóru með henni. Ekki leið á löngu unz Taurua og Jenny fóru að þeirra dæmi og smátt og smátt voru öll börnin komin til þeirra í Autédalinn. Við gátum ekkert við þessu sagt, og vorum í raun og veru fegnir því, að börnin voru farin. Satt að segja var þetta ekki lengur staður fyrir börn. Balhadi hafði ekki farið frá mér, því hún vonaði, að ég sæi að mér, og Mary var einnig hjá Mc Coy. En við tókum ekki mik- ið tillit til þeirra. Fjórar aðrar konur, Hu- tia, Prudence, Susannah og Sarah voru einnig hjá okkur, og sambúðin var þannig, að ég blygðast mín að hugsa til þess. Herra Young hagaði sér engu betur en við. Ef til vill furðar yður á því, að hann skyldi ekki gera það. Hann var prúðmenni að eðlisfari og hafði fengið gott uppeldi. Hvernig gat hann þá glatað sjálfsvirðingu sinni <vo gjörsamlega, að hann legði lag sitt við menn eins og Quintal, Mc Coy og mig. Eg held, að eftir dauða herra Christians hafi vonleysi og svartsýni yfirbugað herra Young, þegar hann sá, hverju fram fór. Hann hafði aldrei verið til foringja fallinn, og hefur sennilega álitið, að hann mundi aldrei geta haft áhrif á okkur til hins betra, og þess vegna væri bezt að láta okkur ráða. Þér vitið líka, herra, að maður, sem hugs- ar svona lendir fljótt í sorpinu, þótt góður sé. En það var greinilegt, að hann fyrirleit sjálfan sig. Aldrei hef ég séð jafn rauna- legt andlit á nokkrum manni og á herra Young. Það var mikið áfall fyrir hann, þegar Taurua fór frá honum til Maimiti, en það breytti honum ekki neitt, þá tók hann að drekka meira en liann hafði gert áður, líkt og hann ætlaði með því, að frem'a sjálfsmorð. Þrátt fyrir þetta og allt annað, var hann alltaf prúðmenni. Eg veit vel, að það var aðeins vínið, sem kom hon- um til að fara að okkar dæmi. Á þessu gekk þar til haustið 1797. Eg man greinilega eftir einu drykkjusvalli seint á því ári. Við höfum skotið svín og béldum síðan veizlu í tilefni af því. Við vorum fjórir og konurnar, sem ég hef áður minnzt á. Af tilviljun bar Jenny og Moetna að, þegar veizlan stóð sem hæst. Þá höguð- um við okkur þannig, að það tók út yfir allt, sem áður hafði gerzt. Það rifjaðist upp fýrir Mc Coy, að þessa dagana voru fjögur ár liðin frá því, er síðasti blökkumaðurinn var drepinn. Hann var svo drukkinn, að hann skeytti ekki um neitt og sagði konun- um, að þessi hátíð væri haldin til minning- ar um það. Síðan tók Quintal að hælast um við Moetna, sem hafði verið kona Minarii, og lýsa því, hvernig hann kastaði manni
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Nýjar kvöldvökur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.