Sjómannadagsblaðið - 01.06.1984, Síða 19
Gabríel. Enskur 25 lesta karraggi frá 16. öld. Á honum sigldi enski sæfarinn Martin
Frobisher til Grænlands og Labrador 1576 til að leita að siglingaleið til Asíu fyrir norðan
Ameríku.
finna NV-leiðina norðan við
Kanada vestur í Kyrrahaf, var
skip sent frá Englandi, sem átti að
rannsaka vestri hafsbotninn milli
vesturstrandar Grænlands og
Hellulands.
Það var árið 1615, skipstjórinn
hét Bylot, en stýrimaðurinn
Baffin. Á honum hvíldu allar
rannsóknir og siglingafræðilegir
reikningar. Talið er, að í þessari
ferð hafi verið fyrst notaðir lóga-
ritmar, í siglingafræðilegum
reikningi. Þeir fóru langt norður
eftir hafinu, sem síðan er kallað
Baffinshaf, og rannsökuðu allt,
sem þeir gátu, svo nákvæmlega,
sem kostur var á.
Þeir komust allt norður í
Smithssund á 78 Nbr. Þessir menn
fóru aðra ferð árið eftir, 1616 og
sigldu þá enn um þessar slóðir,
sem raunverulega er haf, en ekki
sund.
Alls staðar var fullt af hval og
sel, sem drógu menn til norður-
ferða nokkrum árum síðar.
Mælingar Baffins voru dregnar
í efa og ýmsir töldu þær rangar.
Það var ekki fyrr en John Ross fór
um þessar slóðir og endurmældi
þetta allt aftur og lauk miklu lofs-
orði á allar mælingar Baffins og
setti hann í það heiðurssæti, sem
hann á með réttu.
Allt þetta stóra haf, sem íslend-
ingar kölluðu Vesturbotn, en er nú
kallað Baffinshaf, og landið vest-
an við það, sem áður hét Hellu-
land, ber nú nafn þessa heiðurs-
manns og verður svo um alla
framtíð. En íslendinga er að engu
getið, þótt þeir sigldu um þetta
aftur og fram og fóru um þessi
lönd þvers og langs á undan öllum
öðrum nokkur hundruð árum
áður.
Ég gat þess hér að framan, að
þeir Baffin hefðu notað í fyrsta
sinn logaritma við reikninga sína.
Ekki er fjarstæða að láta sér líka
detta í hug, að þeir hafi einnig
notað tríkonómíska lógaritma og
ekki ósennilegt. Þar, sem sá
maður, sem mestur kortagerðar-
maður var var samtímamaður
þeirra, en það var Merkator. Hans
kort höfðu það fram yfir önnur
kort, að þau voru vaxandi eins og
öll sjókort eru nú, en þau eru látin
vaxa eftir tríkónómíska hlutfallinu
secans af breiddinni, en það er
þægilegra að nota þau á háum
breiddum. En þetta hlutfall vex
eftir því, sem breiddin vex.
Kompáslínan er bein lína.
Vínlandskortið.
íslendingar lítilsvirtir
Ekki hafa þó neinir sýnt íslend-
ingum eins mikla lítilsvirðingu
eins og þeir Yale-menn, þegar þeir
fóru í sýnisferð með Vínlands-
kortið. Hvers vegna leggja þeir
þessa lykkju á leið sína og fara alla
leið til Osló og sýna kortið þar, en
krækja framhjá íslenskum fræði-
mönnum. Þeir áttu þó að vita, að
Norðmenn fóru aldrei til Vestur-
heims, þegar hér um ræðir. Sú
þjóð skrifaði ekki aukatekið orð
um þær ferðir, sem ekki var von,
því að hún sigldi þær ekki, og
hafði því ekkert um að skrifa. Þótt
sú þjóð yrði mikil siglingaþjóð
síðar svo sem kunnugt er á nútíma
mælikvarða, þá hafði hún ekki að
ráði stundað siglingar fyrr en
síðar, og þó þeir séu nú með mestu
siglingaþjóðum, sem nú gerast, þá
er það önnur saga.
Nú er það komið á daginn, að
þetta svokallaða Vínlandskort
stóðst ekki prófið eins og til var
ætlast. En ekki hefir það komið
skýrt fram á hverju það hefir fallið
svona hrapallega. Ég hefi aðeins
séð ummæli eftir konu eina, sem
er fræðimaður, og hún heldur því
fram, að ekki hafi verið farið
kringum Grænland. Mig langar
SJÓMANNADAGSBLAÐIÐ 19