Sjómannadagsblaðið

Árgangur

Sjómannadagsblaðið - 01.06.1984, Síða 21

Sjómannadagsblaðið - 01.06.1984, Síða 21
Santa María. Flaggskip Kolumbusar. Karraggi oft talinn 100 lestir. Venjuleg áhöfn 40 manns, en með fylgdarliði Kólumbusar líklega 70 manns. Strandaði fyrir handvömm í spegilsléttum sjó aðfangadagskvöld 1492 við norðurströnd Haiti. Mikið leitað að flak- inu, en ekki fundist. höfunum, af erlendum yfirdrottn- urum, svo að þeir tóku ekki þátt í því. En furðulegt er það, að mestu siglingaþjóðir þess tíma föluðust eftir þeim á skip sín fyrir leið- sögumenn. Þeir virtust hafa vitað, að þeir hefðu áður á sjó komið. Má þar til nefna Jón Skúlason, sem oft fór með Þjóðverjum vestur í hafs- botna. Sömuleiðis annan Jón, sem kallaður var Jón Grænlendingur. Hann var uppi einum hundrað árum síðar, en hann var oft leið- sögumaður hjá Björgvinjarmönn- um vestur á Grænlandshafnir. Vilhjálmur Stefánsson fullyrðir í tveim bókum sínum, að Colum- bus hafi farið til íslands árið 1477 og hafi dvalið þar um veturinn til þess að kynna sér þekkingu Is- lendinga á siglingum vestur í heimi. Talið er, að Henry Hudson hafi komið við á íslandi og fengið þar menn til leiðsagnar í hina fyrstu ferð sína vestur í Vestur- hafsbotninn. Ekki er að sjá, að hann hafi vantreyst sjómennsku þeirra eða þekkingu þeirra á þess- ari siglingaleið. Þeir sem efast, ættu að sigla slóðina Ef þið eruð af þeim hópi, sem ekki getið trúað neinu um sjó- mennsku forfeðra okkar, þá vil ég ráða ykkur til þess að fara í sum- arfrí norður eftir á Svalbarðaslóð- irnar, þegar sól er á lofti dag og nótt. Það er aðeins þokan, sem getur truflað hina dýrðlegu veröld, og hún er að vísu nokkuð tíð, en lyftist þó upp með köflum. Það þarf ekki að vera svo kostnaðar- samt að skreppa þarna norðureft- ir. Leigið ykkur hundrað tonna mótorbát, tveir ykkar þurfa að bæta við menntun ykkar punga- prófi, þá fá þeir réttindi til skips- stjórnar á þessu skipi. Vélamenn þurfið þið líka að hafa. Þyki ykkur öruggara að hafa landkenningu af Noregi, getið þið tekið Norður- Noreg og haldið svo norður með honum. Farið svo frá nyrstu ann- nesjum þaðan til Bjarnareyjar. Á þessu svæði getið þið svo kastað og fengið ykkur í soðið, því að þarna er góður togbotn. Gætið ykkar samt að kasta ekki niður á 170 faðma dýpi VSV af Bjarnarey, því að þar liggja nokkrar skipalestir í botni, sem herskipin þýsku sökktu þar, þegar þau leyndust í norsku fjörðunum og lágu fyrir þeim, sem ætluðu til N-Rússlands. Talið var að þarna lægju þau, sem Admeral Hipper sökkti. Þar lágu þau fyrir skipalestunum ásamt honum „Von Tirpetz“ og fleiri. Talið er að „Skipalestin dauðadæmda“ liggi þar líka, í henni voru 33 skip, auk verndarskipanna, sem voru ekki undir 15—20, þegar þau fóru af stað út úr Hvalfirði 27. júní 1942. Fyrst var byrjað að sökkva þeim, því að þá varð auðveldara að ráð- ast á hin, sem voru aðeins létt- vopnuð, enda komust þau þá alla leið, mjög fá. Ég læt þessa styrjaldarsögu nægja. Á Bjarnareyjarsvæðinu er veðrátta dýrðleg og meðan sól er á lofti dag og nótt, eins og ég hefi þegar tekið fram. Ef þið viljið halda áfram norður á bóginn, þá eru ekki nema á annað hundrað mílur norður til Svalbarða, frá Bjarnarey. Ef þið eruð svo heppnir að hitta á íslítið sumar getið þið farið vestur með Grænlandi að norðan, en ekki ætla ég að telja ykkur á það, því að Kennidysund og Smithsund eru ísabæli og þarf góðan útbúnað til þess að leggja skipum á þá leið, þótt óneitanlega væri gaman að fara hana. Að síðustu þetta: Hafið enga minnimáttarkennd, íslendingar geta allt, sem aðrar þjóðir gera á SJÓMANNADAGSBLAÐIÐ 21
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92

x

Sjómannadagsblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannadagsblaðið
https://timarit.is/publication/557

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.