Sjómannadagsblaðið

Årgang

Sjómannadagsblaðið - 01.06.1984, Side 22

Sjómannadagsblaðið - 01.06.1984, Side 22
sjó og nokkru meira að minnsta kosti, þegar þeir fundu Svalbarða og önnur lönd. Öllumlengrif jörður og önnur örnefni, eða fjarðanöfn á Grænlandi Sigurður Guðjónsson, skipstjóri hefur tekið saman ýms heiti á fjörðum, eða íslensk heiti á fjörð- um í Grænlandi, og fer örnefna- skrá þessi hér á eftir. Athyglisvert er nefnið Öllumlengrifjörður, sem er á austurströnd Grænlands, rétt norðan við 70° N. eða við Scoris- bysund, eða Tobinhöfða, sem svo oft er nefndur í veðurfregnunum. Þessi fjörður er án efa „öllum lengri“ á Austur-Grænlandi eða um 200 km og skiptist í þrjá firði innar. Um tíma var talið að þarna væri „skipaleið“ til vesturstrand- arinnar. Það vekur nokkra athygli, að íslendingar hefðu til forna verið á þessum slóðum, því saga þeirra er einkum bundin við vesturströndina. Þetta sýnir okkur, að víðtæk þekking hefur legið fyrir á íslandi um Grænland, þegar til forna. Fer nú örnefnaskráin hér á eftir, og stundum með athugasemdum, en ekki er nú til fulls vitað, hvar allir þessir firðir eru nákvæmlega; en vísbending fylgir þó nöfn- unum, því gjöra má ráð fyrir að landnemarnir hefðu haft þau með að heiman, úr héraði á íslandi: Torfafjörður Melrakkanes Herjólfsnes Hellisey Hrakbjarnarfjörður Ketilsfjörður Hellisfjörður Lundey Álftafjörður Siglufjörður Hornafjörður Hrafnsfjörður (S. af Eiríksfirði) Austkarsfjörður Hafgrímsfjörður Sléttufjörður Ófundinnfjörður Eiríksfjörður ísafjörður Dýranes Brandafjörður Strandafjörður Miðfirðir Kolafjörður Dýrafjörður Þorvaídsfjörður Steinsfjörður Bergþórsfjörður (Um þann síðastnefnda er það að segja, að þar var veiði mikil, þ. á m. hvalveiði og auðvelt til veiða. Skerst fjörðurinn inn í landið til austurs og var eign kirkjunnar manna, en biskupsleyfi þurfti til að fá að stunda veiðiskap þar, eða í Bergþórsfirði) Þau örnefni sem nú eru notuð, eru flest grænlensk, þótt vitaskuld séu þau yngri en fornu íslensku nöfnin og staðarheitin. Með bestu kveðju og góða ferð. Sigurður Guðjónsson. Hraðfrysting — Saltfiskverkun Skreiðarverkun Útgerð: BV Bjarni Benediktsson RE 210 BV. Ingólfur Arnarson RE 201 BV. Snorri Sturluson RE219 BV. Hjörleifur RE211 BV. Jón Baldvinsson RE 208 BV. Ottó N. Þorláksson RE 203 Bæjarútgerð Reykjavíkur Hafnarhúsinu við Tryggvagötu Sími 24345 (5 línur) Símnefni BÚR. — Telex: 2019. 22 SJÓMANNADAGSBLAÐIÐ

x

Sjómannadagsblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannadagsblaðið
https://timarit.is/publication/557

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.