Sjómannadagsblaðið - 01.06.1984, Qupperneq 22
sjó og nokkru meira að minnsta
kosti, þegar þeir fundu Svalbarða
og önnur lönd.
Öllumlengrif jörður og
önnur örnefni, eða
fjarðanöfn á Grænlandi
Sigurður Guðjónsson, skipstjóri
hefur tekið saman ýms heiti á
fjörðum, eða íslensk heiti á fjörð-
um í Grænlandi, og fer örnefna-
skrá þessi hér á eftir. Athyglisvert
er nefnið Öllumlengrifjörður, sem
er á austurströnd Grænlands, rétt
norðan við 70° N. eða við Scoris-
bysund, eða Tobinhöfða, sem svo
oft er nefndur í veðurfregnunum.
Þessi fjörður er án efa „öllum
lengri“ á Austur-Grænlandi eða
um 200 km og skiptist í þrjá firði
innar. Um tíma var talið að þarna
væri „skipaleið“ til vesturstrand-
arinnar. Það vekur nokkra athygli,
að íslendingar hefðu til forna
verið á þessum slóðum, því saga
þeirra er einkum bundin við
vesturströndina. Þetta sýnir okkur,
að víðtæk þekking hefur legið fyrir
á íslandi um Grænland, þegar til
forna.
Fer nú örnefnaskráin hér á eftir,
og stundum með athugasemdum,
en ekki er nú til fulls vitað, hvar
allir þessir firðir eru nákvæmlega;
en vísbending fylgir þó nöfn-
unum, því gjöra má ráð fyrir að
landnemarnir hefðu haft þau með
að heiman, úr héraði á íslandi:
Torfafjörður
Melrakkanes
Herjólfsnes
Hellisey
Hrakbjarnarfjörður
Ketilsfjörður
Hellisfjörður
Lundey
Álftafjörður
Siglufjörður
Hornafjörður
Hrafnsfjörður (S. af Eiríksfirði)
Austkarsfjörður
Hafgrímsfjörður
Sléttufjörður
Ófundinnfjörður
Eiríksfjörður
ísafjörður
Dýranes
Brandafjörður
Strandafjörður
Miðfirðir
Kolafjörður
Dýrafjörður
Þorvaídsfjörður
Steinsfjörður
Bergþórsfjörður
(Um þann síðastnefnda er það að
segja, að þar var veiði mikil, þ. á
m. hvalveiði og auðvelt til veiða.
Skerst fjörðurinn inn í landið til
austurs og var eign kirkjunnar
manna, en biskupsleyfi þurfti til
að fá að stunda veiðiskap þar, eða
í Bergþórsfirði)
Þau örnefni sem nú eru notuð,
eru flest grænlensk, þótt vitaskuld
séu þau yngri en fornu íslensku
nöfnin og staðarheitin.
Með bestu kveðju og góða ferð.
Sigurður Guðjónsson.
Hraðfrysting — Saltfiskverkun
Skreiðarverkun
Útgerð:
BV Bjarni Benediktsson RE 210
BV. Ingólfur Arnarson RE 201
BV. Snorri Sturluson RE219
BV. Hjörleifur RE211
BV. Jón Baldvinsson RE 208
BV. Ottó N. Þorláksson RE 203
Bæjarútgerð
Reykjavíkur
Hafnarhúsinu við Tryggvagötu
Sími 24345 (5 línur)
Símnefni BÚR. — Telex: 2019.
22 SJÓMANNADAGSBLAÐIÐ