Sjómannadagsblaðið

Årgang

Sjómannadagsblaðið - 01.06.1984, Side 29

Sjómannadagsblaðið - 01.06.1984, Side 29
(1842—1928) og konu hans Maríu Magnúsdóttur (1843—1879). Voru þau hjón bæði dýrfirsk að ætt. Móður sína missti hann er hann var aðeins 6 ára að aldri, og fluttist þá til vandalausra um tveggja ára skeið, en fór þá aftur til föður síns og dvaldist með honum fram á fermingaraldur. Móður- laust barn átti ekki margra kosta völ á þeim tímum, og bókvitið þótti þá þunnur kostur eins og kunnugt er. Væri kristninni komið á, þótti uppeldinu að fullu lokið, og úr því áttu unglingarnir að geta bjargað sér í lífsins ólgu sjó. Eins og margir aðrir unglingar hélt Guðbjartur að heiman eftir ferminguna tií þess sjálfur að sjá fyrir sér á þann hátt, sem bezt mætti verða, til þess sjálfur að skapa sér lífsstarf og framtíð, og synda eða sökkva, eftir því hvaða töggur væri í honum. Og vega- nestið var: óskir fátæks föður um farsæld, minning móðurinnar, sem hann naut of skamma stund og bænirnar, sem hún hafði kennt honum og hann enn hafði ekki gleymt. Hann dvaldist næstu tvö árin á hinu ágætasta heimili hjá séra Þórði Ólafssyni, sem þá bjó á Gerðhömrum og síðar á Söndum, og hans ágætis konu. Rómar hann enn alla ástúð þeirra og taldi sig Magnús Guðmundur Guðbjartsson, f. 17. marz 1899 að Gemlufalli í Dýraf. Faðir: G. Björnsson (f. 19. des. 1842 að Hrauni í Keldudal, Dýraf., d. 31. okt. 1928) bóndi á Læk og síðar Höfða í Dýraf., sonur B. Ásbjörnssonar, bónda í Botni síðar Felli í Dýraf. og Guðrúnar Björnsdóttur. Móðir: Sigríður Magnúsdóttir (f. 28. jan. 1862 að Kjarans- stöðum í Dýraf., d. 27. okt. 1900), dóttir M. Sigurðssonar, bónda að Gemlufalli í Dýraf. og Guðrúnar Jónsdöttur. Vsk.-próf 1922. Vélstj. á togurum 1922—29. Vélstj. á varð- skipunum Óðni (1) og Þór (II) til 1933 og síðan á skipum Skipaútg. ríkisins til 1941. Starfrækti hraðfrystihúsið Fisk & ís í Vestm.eyjuni 1941—48. Stjórnandi Olíuhreins- unarstöðvarinnar h.f. til 1958, en liefur síðan rekið Smurstöðina Sætún 4 í Rvík. — K. 1) 24. okt. 1925 Kristbjörg Sveinbjörnsdóttir, f. 28. okt. 1903, d. 1. apríl 1927, dóttir S. Jónssonar, verkam. og Önnu Ásmundsdóttur. Barn: Kristberg, f. 20. marz 1927, vélstj., kv. Rögnu Ágústsdóttur. — K. 2)3. okt. 1931 Sveinsína Jónsdóttir, f. 12. marz 1900, d. 21. sept. 1932, dóttir J. Jónssonar, verkam. og Sólborgar Sigurðardóttur. Barn: Magnea, f. 21. sept. 1932, g. Guðna Ólafssyni, vélstj. — K. 3) 8. apríl 1939 Sigríður Benónýsdóttir, f. 12. nóv. 1915, dóttir B. Stefánssonar, stýrim. og Guðmundu Guðmundsdóttur. Börn: 1) Elísabet, f. 30. ágúst 1940, húsmæðrakennari, g. Eysteini Sigurðssyni, cand. mag. 2) Gylfi Þór, f. 20. des. 1942, viðskiptafr. (80). Magnús lést árið 1976. hafa haft mikið gott af vistinni þar. Þessi ár fékk hann nokkra til- sögn í almennum fræðum á þeirra tíma vísu. Hann dvaldist síðan á ýmsum heimilum við Dýrafjörð, unz hann kvæntist 14. október 1893 heitmey sinni, Halldóru Sig- mundsdóttur frá Hrauni í Dýra- firði, en á því heimili hafði hann þá dvalið um nokkur ár. Á Framnesi við Dýrafjörð starfræktu Norðmenn hvalveiðar Tveir í fullu uniformi, þá á varðskipinu ÞÓR II. Magnús Guðbjartsson og bróðursonur hans Sigmundur Guðbjarts- son. Myndin var tekin árið 1930. fyrir síðustu aldamót og nokkuð fram á 1. tug aldarinnar. Vann Guðbjartur þar um allmörg ár og kynntist þar fyrst meðferð og hirðingu véla, og naut þar mikillar tilsagnar hins norska vélfræðings Hinriksens, sem hafði þar verk- smiðjustjórn á hendi um mörg ár. Telur Guðbjartur sig eiga þeim manni mest að þakka þá fræðslu alla, er hann fékk í meðferð véla, bæði á sjó og landi. Að loknu verklegu námi við verksmiðjuna á sumrum og viðgerð hvalabátanna á vetrum, var Guðbjartur sendur til veiðiferða á hvalabát sem kyndari, til þess þar að læra með- ferð eimvéla á hafi úti og stundaði það í tvö sumur. En þá var honum falin vélgæzla sem 2. vélstjóri, er hann stundaði til ársins 1906. Um þessar mundir hófst hér togaraút- gerð og var Guðbjartur þá ráðinn sem 2. vélstjóri á togaranum „Coot“ er gerður var út frá Hafn- arfirði. Ólafur sál. Jónsson var þá 1. vélstjóri á skipinu. Þegar togar- inn Jón forseti kom til landsins 1907, var Guðbjartur ráðinn á hann sem 1. vélstjóri. Hann var því fyrsti íslenzki vélstjórinn, sem ráðinn var á fyrsta togarann, sem smíðaður var fyrir íslenzka eig- endur. Frá þeim tíma starfaði hann óslitið sem yfirvélstjóri á fiskiskipum, flutningaskipum og SJÓMANNADAGSBLAÐIÐ 29

x

Sjómannadagsblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannadagsblaðið
https://timarit.is/publication/557

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.