Sjómannadagsblaðið

Volume

Sjómannadagsblaðið - 01.06.1984, Page 32

Sjómannadagsblaðið - 01.06.1984, Page 32
„Eins og ein fjölskylda", er stunduin sagt, þegar vel er unnið saman. En það eru líkiega ekki niargar fjölskyldur er gætu mannað vélarrúm á stórskipi. Ásgeir Guðnason, vélstjóri, son- ur Guðna, f. 1947. Vann hjá Bur- meister og Wein í Kbh. síðar vél- stjóri á hvalbátum og fiskibátum. Nú vélaeftirlitsmaður í Hafnar- firði. Kenndi vélfræði um tíma. Næst nefnum við hér: Hilmar Friðriksson, (1911— 1973). Foreldrar hans voru F. Klausen og Bjargey Sigríður Sig- urðardóttir, en Sigríður amma Hilmars var systir Guðbjartar Guðbjartssonar og móðir Guðjóns Sigurðssonar, vélstjóra og þeirra bræðra, er getið verður síðar. Hilmar lauk vélskólaprófi árið 1934, en vann einkum við fram- kvæmdir, m.a. hjá Þorgeiri og Ell- ert á Akranesi og hjá Höjgaard og Schultz við Sogsvirkjun. Gerðist síðan verkstjóri í Héðni, en vann seinustu árin hjá Álverinu í Straumsvík. Sonur hans: Sigurður H. Hilmarsson f. 1944. Lauk vélskólaprófi og prófi í raf- magnstæknifræði í Ulmeá. Vél- stjóri á vitaskipinu Árvakur 1965—1968. Vélfræðikennari á Hvanneyri 1968—1969. Kennari við Vélskólann í Reykjavík frá 1972. Guðjón (Marias) Sigurðsson (1893—1959). Systursonur Guð- bjarts Guðbjartssonar. Vélsk. 1921. Vélstjóri á Nóru 1921—22, síðan á Svölu. Næsta sumar vél- stjóri á varðskipinu Þór (I), síðan aftur á Nóru. Vélstjóri á Hermóði (I) og(II) 1924—1958. Guðjón fórst með Hermóði, en hann gegndi þar þá störfum vegna forfalla. Jón Sigurðsson. Bróðir Guðjóns. Vélstjóri hjá Bergenska gufuskipafélaginu í fjölda ára. Meðal annars vélstjóri á stórum tankskipum. Fékk ársleyfi til þess að sigla með Nóru, en hélt síðan utan aftur. Lést árið 1976. Guðbjartur Sigiirðsson. Bróðir Guðjóns. Var vélstjóri í Noregi í 32 SJÓMANNADAGSBLAÐIÐ síldar- og fiskimjölsverksmiðju í Haugasundi í Noregi. Jóhannes (Haraldur) Jónsson f. 1923. (Bróðursonur Guðjóns Sig- urðssonar, vélstjóra á Hermóði). Vélstjóri á Akraborg 1962—67, síðan á Goðanum til 1971, en varð þá vélstjóri á Kyndli, eða frá 1972. Ingibjörg systir hans er gift Jóni Vilhjálmssyni, vélstjóra, Skipa- deild Sambandsins. Og einnig er þess að geta, að einn sonarsonur Guðjóns Sigurðssonar er nú í Vél- skólanum og lauk öðru stigi 1983. Hann heitir Guðmundur Gils Guðmundsson. Sigurður Jónsson (1904—1963). Frændi og sveitungi Guðbjartar. Var í kosti hjá frænda sínum, er hann stundaði vélskólanám. Sig- urður varð síðar vélstjóri á línu- veiðurum og síðar forstjóri Vél- smiðju Patreksfjarðar. Lærði smíðar hjá Guðmundi á Þingeyri. Sigurður Ólafsson. Guðbjartur var langafi hans. Sigurður er vél- stjóri við Landsvirkjun, og yngstur vélstjóra í þessum frændgarði. Þótt þessi fróðleikur sé ekki tæmandi, sýnir hann okkur þó að vélfræði er ættgeng, ef svo má orða það. Þó væri ef til vill réttara að segja, að þetta séu vestfirskar sjómannsættir. Og nú fara á fjöl- um miklir aflamenn t.d. á Vest- fjörðum af sama stofni. Frægðar- menn og traustir sjómenn. Nöfn verða ekki fleiri nefnd hér, en ef til vill hefur þessi lesning verið einhverjum til fróðleiks. JG tók saman

x

Sjómannadagsblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sjómannadagsblaðið
https://timarit.is/publication/557

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.