Sjómannadagsblaðið - 01.06.1984, Page 33
PISKISKIPASTÓLU MN
IÁRSLOK1983
Verum þolinmóðir menn
meins ef þreyjum hríðir
aumir tímar endast senn
aðrar koma tíðir.
Hér á eftir verður nokkur grein
gerð fyrir fiskiskipastól landsins
eins og hann var skráður í Sjó-
manna Almanaki Fiskifélags ís-
lands, er út kom í desember s.l. þá
í 59. skiptið frá því að Fiskifélagið
tók við útgáfu þess árið 1925, en
fyrsta almanakið var gefið út árið
1914 þá af Stjórnarráðinu.
Þrátt fyrir „auma tíma“ í ís-
lenskum sjávarútvegi voru skrá-
sett 25 fiskiskip á árinu, þar af 3
nýir skuttogarar og vitað var að
samið hafi verið um smíði 14
skipa til afhendingar á árinu 1984.
Þar af 11 skip smíðuð innanlands
og 3 í Póllandi.
Samkvæmt skipaskrá Sjó-
manna Almanaksins voru skrásett
835 fiskiskip samtals 111.767
brúttórúmlestir. á móti 841 skipi
og 111.853 brúttórúmlestum í
fyrra, og skiptust þau þannig eftir
stærðarflokkum.
Tafla I:
Árslok 1983 Meðalaldur
Bátar undir 12 brl. 251 2.091 brl. 16.9 ár
Bátar 13—20 brl. 56 919 brl. 17.5 ár
Bátar21—50 brl. 104 3.464 brl. 19.5 ár
Bátar 51—110 brl. 131 10.203 brl. 23.7 ár
Bátar 111—200 brl. 101 15.692 brl. 16.5 ár
Bátar 201—500 brl. 77 21.752 brl. 15.9 ár
Bátar 501—800 brl. 5 3.233 brl. 10.8 ár
Bátar 800 og yfir 3 2.801 brl. 17.0 ár
Samtals 728 60.155 brl.
Skuttogarar undir 500 brl. 85 34.413 brl. 7.8 ár
Skuttogarar yfir 500 brl. 18 15.246 brl. 12.4 ár
Hvalveiðiskip 4 1.953 brl. 35.8 ár
Samtals 835 skip 111.767 brúttórúmlestir.
Tafla II: Fjöldi og meðalaldur fiskiskipa eftir landshlutum.
1. Suðurland 105 skip 19.8 ár
2. Reykjanes 243 skip 17.4 ár
3. Vesturland 89 skip 15.8 ár
4. Vestfirðir 122 skip 19.5 ár
5. Norðurland vestra 51 skip 16.0 ár
6. Norðurland eystra 132 skip 15.6 ár
7. Austfirðir 89 skip 14.3 ár
Samtals 831 skip 17.1 ár meðalaldur
Hvalveiðiskip 4 skip 35.8 ár meðalaldur
Þegar litið er á þessar töflur
kemur í ljós að elstu skipin eru í
Suðurlandskjördæmi. Þar er
meðalaldur allra fiskiskipa tæp 20
ár, en yngst eru þau á Austfjörð-
um rúm 14 ár. Og ef litið er á
meðalaldur hinna ýmsu stærðar-
flokka sést að flokkur skipa af
stærðinni 51—110 brúttórúmlestir
sker sig algerlega úr, þar sem
meðalaldurinn er 23.7 ár.
Á hinu hefðbundna vertíðar-
svæði þ.e. frá Hornafirði til
Breiðafjarðar eru samtals 98 skip í
SJÓMANNADAGSBLAÐIÐ 33