Sjómannadagsblaðið - 01.06.1984, Side 43
Vinnuflokkur Bandarísku strandgæslunnar við störf á skerinu, en invndin er tekin, þegar
framkvæmdir voru að hefjast við steinvitann á Minot’s Ledge.
Aðstoðarmennirnir tveir, Antonie
og Wilson áttu að sjá um vitann á
meðan.
Benett vitavörður hélt til
Boston, til þess að ræða við yfir-
völd og til að fá nýjan bát fyrir
vitann, en 16. apríl brast á NA-
stormur, eitt versta veður sem gert
hafði á þessum slóðum í heila öld,
að því er talið er.
I Boston óttuðust menn um
mennina tvo, er gættu vitans á
Minotskletti, en vegna veðurs var
óhugsandi að veita þeim nokkra
aðstoð, eða að sækja þá út í vitann.
Mönnum varð þó tíðlitið til hafs
og a.m.k. til klukkan 22:00 um
kvöldið, þóttust menn greina ljós-
ið í vitanum, en skömmu eftir
miðnætti hvarf það fyrir fullt og
allt.
í dögun 17. apríl, kom Benett
vitavörður heim til sín í Cohasset,
og hafði hann þungar áhyggjur af
mönnunum tveim, er voru úti í
vitanum. í birtingu gekk hann til
strandar og sá sér til mikillar
skelfingar að vitinn var horfinn og
hafði braki úr honum skolað til
strandar. Og nokkru síðar fundust
lík vitavarðanna tveggja rekin á
fjörur.
Það þarf ekki að fjölyrða um
viðbrögð manna, og er þetta slys
enn talið það versta í bandarískri
vitasögu.
Nýr viti reistur
Það næsta sem skeði, var að
þingið kaus nýja vitanefnd, sem
skipuð var verkfræðingum hers-
ins, sjóliðsforingjum og óbreyttum
borgurum. Nefndin heyrði undir
fjármálaráðuneytið, er héreftir átti
að annast vitasmíði, rekstur vita og
viðgerðir á þeim.
Eitt af fyrstu verkum nefndar-
innar var það að kanna hvort
hugsanlegt væri að endurreisa vit-
ann á Minots. Einn nefndar-
manna, Trotten hershöfðingi og
fyrrum yfirverkfræðingur Banda-
ríkjanna, lagði fram tillögur um
Vinnuteikning af Minots vitanum. Vitinn
rís 38 metra uppyfir skerið. Eins og sjá má
er hann heill neðst, hlaðinn úr grjóti en
hringlaga svelgur er í miðjunni. Síðan taka
við vistarverur og Ijósið er efst. Aður
bjuggu vitaverðir þarna, en núna er vitinn
raflýstur og notar rafhlöður, sem orku-
gjafa.
f’ ''
: ir '
hringlaga (keilulaga) vita úr steini,
er vera átti 10 metrar í þvermál,
neðst en tæpir 7 metrar efst.
Þessi tillaga hlaut samþykki, og
rækilegur undirbúningur hófst að
vitasmíðinni. Gert var nákvæmt
líkan af vitanum og tók undir-
búningurinn tvö ár.
Rannsóknir voru gerðar á vita-
stæðinu, og niðurstaðan varð sú að
unnt væri að byggja þennan
trausta vita á sama stað og stálvit-
inn hafði staðið. Og í júní árið
1855 hófust framkvæmdir (sjá
mynd). Byrja varð á því að fjar-
lægja leyfar af undirstöðu fyrri
vitans. Síðan hófst vitasmíðin, en
vitinn var hlaðinn úr sérlöguðum
granítsteinum, sem höggnir voru í
landi.
3.514 tonn af graníti fóru í vit-
ann, 1079 steinar, sem tilhöggnir í
rétt form vógu 2.367 tonn.
Vitasmíðin var ekki auðveld,
fremur en í fyrra skiptið.
Þannig urðu vinnustundir á
skerinu fyrsta árið aðeins 130
klukkustundir. Og þegar menn
voru í skerinu, hringsóluðu björg-
unarbátar hjá og hirtu þá menn
upp, sem sjórinn skolaði í hafið.
Reyndust bátar þessir svo vel,
að þeir voru notaðir víðar til hlið-
SJÓMANNADAGSBLAÐIÐ 43