Sjómannadagsblaðið

Ukioqatigiit
Ataaseq assigiiaat ilaat

Sjómannadagsblaðið - 01.06.1984, Qupperneq 59

Sjómannadagsblaðið - 01.06.1984, Qupperneq 59
anum leið, með því að gægjast inn um kýraugað á klefa stýrimanns, og þannig fylgst með tímanum, en inn í klefann þorðu þeir ekki fyrir nokkurn mun. Stormur í hafi Smám saman þokaðist TRA- FALGAR áfram á norðlægri stefnu, djúpt norður með strönd Ástralíu. Það tók að kólna í veðri og hitinn varð mönnum ekki lengur óbærilegur. Og brátt sást eyðileg vesturströnd Ástralíu í fjarska, skipshöfninni til mikillar gleði. Þó gladdist skipstjórinn ungi ef til vill mest, og hann snéri skipi sínu til austlægrar stefnu, því nú vissi hann að aðeins 1500 sjómílur voru til Melbourne. Og sem meira var um vert, hin hræðilega hitasótt virtist um garð gengin. Á þessum slóðum er allra veðra von, jafnvel á þessum árstíma. Stormur skall á. Shotton vissi, sem var, að skipshöfn hans var vanbúin að mæta vondu veðri. Andinn, eða andi hinnar sam- stilltu skipshafnar, var ekki um borð í þessari skútu, svo mikið vissi hann. Og hann greip til þess ráðs að fækka seglum sem mest. Að fækka seglum var ef til vill rétta orðið, því sum seglin hreif vindurinn með sér, áður en skips- höfninni tókst að taka þau saman, og með æði óvenjulegri seglasíu byltist TRAFALGAR gegnum storm og stóran sjó. — En sem mestu máli skipti, skipinu miðaði áfram, og þegar það fór að nálgast höfn, og skipshöfnin hafði gjört sér grein fyrir því, að skipið var undir styrkri stjórn, þá breyttist andinn um borð. Skipverjar fóru að vinna. Vinna eins og sjómönn- um sæmdi. Iðjusemi kom nú í stað leti og trassaskapar og allt lék nú í lyndi. Shotton greindi þessa breytingu, sem orðið hafði á mönnum hans og honum létti. Það var 16. desember, eða rúm- um sex vikum eftir að TRA- FALGAR lagði upp frá Jövu, að Bill Shotton sá móta fyrir höfninni í Melbourne framundan, og þar með vissi hann, að mesti vandinn við þessa hræðilegu ferð hlaut að vera afstaðinn. En var það svo? Nei, því miður. Örðugleikarnir voru ekki að baki, þótt svo skammt væri til hafnar. Honum tókst ekki með neinu móti að finna nothæft sjókort af leiðinni inn til Melbourne. Og sem verra var. leiðsögubók skipsins var meira en aldarfjórðungs gömul og þar stóð ekkert um ljósin sem hann sá blikka á ströndinni gegnum myrkrið. Hann kaus því að snúa skipinu frá og bíða birtingar, áður en hann leitaði hafnar. Nóttin leið og sólin kom upp og hægt snéri TRAFALGAR stafni til lands. Og Shotton skipstjóra til undrunar og gleði þá röðuðu skipverjarnir á TRAFÁLGAR sér upp og heilsuðu honum, þegar hann tók hafnsögumanninn um borð. Hann hafði unnið sér fulla virðingu þeirra. Hann hafði sigrað hafið, sýnt hæfni sína og hann hafði unnið sér verðugt traust. Á öllum tímum vinna menn af- rek, bæði til sjós og lands og hæfni hins 18 ára lærlings á TRA- FALGAR og hetjulund, vakti mikla athygli. Nokkrum mánuðum síðar var hann sæmdur Lloyd’s orðunni í London, en hann varð fyrsti mað- urinn, sem varð þess heiðurs að- njótandi. Og hæverskur að vanda sagði Shutton þessi orð er hann veitti orðunni viðtöku: —- Ég er þakklátur, en ég gjörði aðeins skyldu mína. FISKIMÁLASJÓÐUR Tjarnargötu 4 — Reykjavík Stofnsettur meö lögum 23. maí 1947. Veitir lán gegn siðari veðrétti til stofnunar alls konar fyrirtækja, sem horfa til eflingar fiskveiðum og hagnýtingu sjávar- afurða og veitir styrki í sama tilgangi. Fé sjóðsins á að verja til eflingar sjávarútvegi landsmanna. SJÓMANNADAGSBLAÐIÐ 59
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92

x

Sjómannadagsblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannadagsblaðið
https://timarit.is/publication/557

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.