Sjómannadagsblaðið

Volume

Sjómannadagsblaðið - 01.06.1984, Page 81

Sjómannadagsblaðið - 01.06.1984, Page 81
Einhver tók fiskinn síðan til þurrkunar fyrir umsamið kaup og lagði hann inn í verzlanirnar. Harðæti var að mestu flutt heim, nema ef eitthvað var látið í kaup- staðinn. Lífið í verbúðunum var furðu- lega skemmtilegt, þegar þess er gætt, að svo að segja öll þægindi, sem menn voru vanir heima, skorti, enginn stóll, ekkert borð, ekkert mataráhald nema vasa- hnífurinn og eitt bollapar eða krukka til að drekka kaffið úr, þrengsli mikil, þegar 2 menn og stundum 3, með hálfdrætting, urðu að sofa og vinna allt, sem unnið var, innan búðar á sama rúminu, blaut og grútug skinn- klæðin hangandi á hverri stoð við höfðalögin, skór og vettlingar á bríkarrimlum og rottur hlaupandi út og inn um veggjarholurnar. En þar á móti var húsið hlýtt, skammt til dyra og túður, sem fá mátti loftbreytingar um eftir þörf- um, fæðið óbrotið, en kjarngott, unnið í skorpum, en góðar hvíldir á milli. Þótti unglingum fara þar vel fram, heilsufar var þar engu lakara en á heimilum almennt, ágætur félagsskapur og sam- heldni, gleðskapur og fjör úti og inni, og oft var samrýni skipverja, einkum lagsmanna, svo mikil, að þeir héldu vinskap alla ævi. Sam- eiginleg hætta — og heppni — sameinuðu skipverja ósjálfrátt. Formaður var jafnan mikils- virtur af skipshöfn sinni, og laut hver maður boði hans og banni, enda var hann næstum einvaldur yfir skipverjum, og að lögum meira en nokkur húsbóndi á heimili. Hásetar vissu vel, að hann hafði margoft líf þeirra í hendi sér og undir honum var mest komið, hversu aflaðist. Þannig var lífið í búðunum undantekningarlítið, og víst er um það, að margir aldraðir menn minnast veru sinnar þar með hlýj- um huga og telja það einn af skemmtilegustu köflum ævi sinn- ar. Á lokadaginn, 11. maí á hádegi, voru menn lausir úr skiprúmi og bjuggust til heimferðar. Sam- mældu sig oft margir, er samleið áttu, og voru þá kallaðir „heima- göngumenn“. Heimkoman var sannarlegur fagnaðarfundur, er allt hafði gengið slysalaust, og afli sæmileg- ur, en ástvinir og vandamenn svo sem úr helju heimtir. Öðru máli var að gegna á þeim heimilum, þar sem unnustinn, sonurinn, faðirinn eða eiginmað- urinn var ekki í flokki heim- göngumanna — sem því miður bar oft við, — þá skerandi sorg, sem á þeim heimilum ríkti, getur enginn þekkti nema guð einn og þeir, sem hana reyndu.“ Oddur Oddsson, lýkur ritgerð sinni með þessum orðum: „Þetta er skrifað eftir eigin sjón og reynd og sögnum núlifandi formanna í verstöðum á þeirri tíð. Margt fleira en hér er gert hefði mátt og þurft að nefna, en því er sleppt, bæði með vilja sökum rúmleysis og óviljandi vegna gleymsku.“ SJÓMANNADAGSBLAÐIÐ 81 CALLESEN DIESEL UTGERÐARMENN Hefur þú sem útgeróarmaður efni á aö kaupa aðalvél i skip án undangenginnar athugunnar á eftirfarandi atriðum hjá vélar- seljendum eöa notendum. 1. Brennsluoliunotk- un pr. hestorku- tima 2. Smuroliunotkun 3. Bilanatiðni 4. Varahlutalager 5. Þjónusta 6. Verö miðaö við hestöfl Vlð vonum að vlð heyrum trá þér ef þlg vantar þessar upplýslngar eða haflr samband vlð elnhvern þelrra sem eru með CALLESEN aöalvél. I gamla sklplö eða nýsmiðl — CALLESEN Kynnist kostum Callesen andri hf. UMBOÐS OG HEILDVERZLUN Armúla 28. Pósthóll 1128 Simar 83066, Rvik.

x

Sjómannadagsblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sjómannadagsblaðið
https://timarit.is/publication/557

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.