Sjómannadagsblaðið - 01.06.1984, Page 84
Ý
MINNIINGARORÐ
Guðmundur H. Oddsson
Guðmundur H. Oddsson var fæddur 31. júlí
1911 í Bolungarvík við Isafjarðardjúp sonur
Odds Guðmundssonar frá Hafrafelli við
Skutulsfjörð og fyrri konu hans Jósefínu
Bjarnadóttir frá Ármúla í Nauteyrarhreppi. Á
Bolungarvík var faðir Guðmundar verslunar-
stjóri hjá bróður sínum útgerðar- og athafna-
manninum Pétri Oddssyni. Stóðu að þeim
bræðrum skörungar miklir af svokallaðri
Hafrafellsætt.
Guðmundur átti tvö systkini, séra Tyrfing
Oddsson sem lést í umferðarslysi á besta aldri og
Ragnheiði hjúkrunarkonu sem nú dvelur sem
vistkona á Hrafnistu.
Guðmundur átti enga sældarvist í æsku,
missti móður sína ungur, fór fljótt til sjós sem var
þá nær eina leið þeirra til að brjótast áfram, sem
ekki fluttu gull úr föðurgarði, enda lærði hann
fljótt að standa á eigin fótum og treysta á sjálfan
sig. Það var líka óhætt því Guðmundur var mjög
vel búinn andlegu og líkamlegu atgervi, hár og
þrekinn og samsvaraði sér vel. Fram á síðasta
dag hélt hann fríðu útliti sínu og ekki dró úr
glæsimennsku hans að hann var mikið snyrti-
menni í klæðaburði.
Guðmundur lauk prófi frá Stýrimannaskól-
anum í Reykjavík vorið 1933. Fyrst að loknu
námi vann hann að tryggingarstörfum, en hug-
ur hans stóð til sjómennskunnar og sjávarútvegs
og varð dvöl hans við störf í landi ekki löng.
Stýrimaður og skipstjóri var Guðmundur um
áraraðir og var hann einn þeirra skipstjóra sem
sigldu stöðugt öll heimsstyrjaldarárin með tog-
ara okkar til Bretlands.
Alltaf sigldi hann skipi sínu heilu til hafnar,
hann var vel liðinn af skipsfélögum sínum og
skipshöfn og hélt vináttu þeirra til hinstu
stundar. Hann var lánsmaður í skipstjórn sinni,
því honum ásamt skipverjum hans tókst að
bjarga tugum mannslífa á stríðsárunum.
Eftir að félagsstörfin hlóðust á Guðmund og
hann kom alfarið í land, rak hann eigið flutn-
ingafyrirtæki um margra ára skeið.
Langstærsti hluti ævistarfsins var þó unninn í
þágu sjómannastéttarinnar bæði þeirra sem að
störfum voru og þeirra sem aldraðir voru orðnir,
svo og að hagsmunamálum útgerðar og sjávar-
útvegsins í heild.
Ekki var Guðmundur fyrr kominn í tölu
skipstjórnarmanna en hann var valinn þar til
forystu og þá fyrst í Skipstjóra- og stýrimanna-
félag Reykjavíkur sem hann var með í því að
stofna. Það félag sameinaðist Skipstjóra- og
stýrimannafélaginu öldunni, elsta launþegafé-
lagi landsins og varð Guðmundur þar, sem í sínu
fyrra félagi áhuga- og athafnamaður um fram-
gang hagsmunamála þess.
1 stjórnartíð Guðmundar H. Oddssonar sem
formaður öldunnar, en því trúnaðarstarfi
gegndi hann um langt árabil, varð Aldan það
sterka hagsmunafélag skipstjórnarmanna á
fiskiskipum sem það er í dag.
Samhliða störfum sínum í öldunni starfaði
Guðmundur sem fulltrúi félags síns í Farmanna-
og fiskimannasambandi íslands. Hann átti sæti
í stjórn þess um langt árabil, var forseti sam-
bandsins í tvö kjörtímabil, eða um fjögurra ára
skeið, og átti einnig sæti í Verðlagsráði sjávar-
útvegsins.
Hann átti aðild að og flutti fjölda tillagna um
öryggis- og hagsmunamál sjómanna og var einn
þeirra þriggja manna sem stóðu fyrir undirbún-
ingi og útgáfu á Sjómannablaðinu Víkingi, sem
hefur æ síðan verið málgagn F.F.S.l. og sjó-
mannastéttarinnar í heild.
Hann var einlægur stuðningsmaður að stofn-
un Sparisjóðs vélstjóra og sýndi það í verki,
öðrum fremur að hann vildi gera hann að öfl-
ugri stofnun, allri sjómannastéttinni til hags-
bóta.
Þegar Verðlagsráð sjávarútvegsins hóf sitt
starf, tók Guðmundlur þar sæti sem fulltrúi
F.F.S.Í. og sat þar um árabil.
Hann lét sig miklu varða menntunarmál sjó-
manna, átti sæti í skólanefnd síns gamla skóla
Stýrimannaskólans í Reykjavík, var einn hinna
dugmiklu áhugamanna sem beittu sér fyrir
byggingu skólahússins og átti sæti í milliþinga-
nefnd endurskoðaði lög hans fyrir nokkrum
árum. Fleiri trúnaðarstörfum hefur Guðmundur
gegnt og staðið að margþættum framfaramál-
um á sviði útgerðar- og sjávarútvegsmálum. Þá
stóð hann fyrir söfnun efnis og útgáfu skipstjóra-
og stýrimannatals í 4 bindum.
Ekkert átti þó hug hans í jafn ríkum mæli og
baráttumál Sjómannadagssamtakanna í
Reykjavík og Hafnarfirði. Við vorum þar nánir
samstarfsmenn í nær aldarfjórðung og þekkti
því vel til fórnfýsi hans og elju á þessu sviði.
Guðmundur H. Oddsson var einn þeirra sem
strax gekk til leiks, þegar fyrsta kallið að stofnun
þessara samtaka kom frá Henrý Hálfdánarsyni
og félögum hans. Guðmundur vann við undir-
búning að stofnun Fulltrúaráðs Sjómannadags-
ins í Reykjavík og Hafnarfirði og var kjörinn
fyrsti gjaldkeri þess. Að undanskildum stríðsár-
unum og næstu árum þar á eftir var hann full-
trúi í ráðinu og orðinn meðstjómandi á sjöunda
áratugnum og kjörinn gjaldkeri á aðalfundi
1960 og endurkjörinn æ síðan og því starfi
gegndi hann til síðustu stundar, en hann var
endurkjörinn enn einu sinni til næstu þriggja
ára á aðalfundi samtakanna í maí 1983.
Á því tímabili sem við Guðmundur höfum
setið saman í stjórn þessara samtaka hefur verið
tekið í notkun húsnæði fyrir um 300 aldraða
vistmenn að Hrafnistu í Reykjavík og eru þ.á m.
hjónaíbúðirnar við Jökulgrunn en sú gata liggur
um lóð Hrafnistu.
Hrafnista í Hafnarfirði með vernduðum
íbúðum og hjúkrunardeild hefur verið komið
upp og búa þar um 200 vistmenn. Barnaheimili
var reist og rekið á jörð samtakanna í Grímsnesi.
Þar hefur verið byggður fjöldi orlofshúsa, bæði
einstakra sjómannafélaga og samtakanna
84 SJÓMANNADAGSBLAÐIÐ