Sjómannadagsblaðið

Árgangur

Sjómannadagsblaðið - 01.06.1984, Síða 86

Sjómannadagsblaðið - 01.06.1984, Síða 86
maður mikill og tók þessu karlmannlega eins og hans var von og vísa. Með Júlíusi er farinn óvenju vandaður og grandvar maður, og á ég enga betri ósk til handa þjóð minni en þá, að sem flestir ungir menn mættu líkjast honum í hugsun, trúmennsku og starfi. Við sem eldri erum hér í Sjómannadagsráði minnumst Júlíusar kannski fyrst og fremst fyrir göfuglyndi hans. Alltaf bar hann sáttarorð, efndi aldrei til úlfúðar eða illinda. Hann gat gagnrýnt þannig að öllum fannst sem um já- kvætt framlag til viðkomandi málefnis væri að ræða. Með Júlíusi Ólafssyni er genginn sannur maður, kristinn í framkomu og lífsskoðunum, sómi íslenskrar sjómannastéttar. Sæmundur Elías Ólafsson Sæmundur Elías Ólafsson, fæddist á Vind- heimum í ölfusi 7. apríl 1899. Hann ólst upp á Breiðabólstað hjá foreldrum sínum til 13 ára aldurs, en þá missti hann móður sína. 16 ára fór hann í vinnumennsku á nálæga bæi í Ölfusinu og stundaði róður frá Þorlákshöfn. 21 árs að aldri hóf hann nám í Stýrimannaskólanum í Reykjavík og gerðist togarasjómaður að því loknu. Árið 1938 hætti hann sjómennsku og hóf störf í Kexverksmiðjunni Esju og tók við stjórn þess fyrirtækis nokkru síðar. Þar vann hann þangað til rekstrinum var hætt 1976. Samhliða þessu gegndi hann ýmsum störfum fyrir Sjó- mannafélag Reykjavíkur og Alþýðuflokkinn. Árið 1925 giftist hann Vigdísi Þórðardóttur, og lifir hún mann sinn. Þau byggðu húsið að Sjafnargötu 2 í Reykjavík árið 1931 og áttu þar heima síðan. Þau eignuðust 4 börn. Sæmundur var mikill náttúruunnandi. Átti sauðfé áratug- um saman eins og fleiri góðir félagar í S.R. í desember 1980 voru nokkrir félagar Sjó- mannafélagsins heiðraðir fyrir langt og óeigin- gjarnt starf í þágu félagsins og íslenskrar sjó- mannastéttar. Sæmundur E. Ólafsson var einn þeirra. Árið 1919 var Sæmundur félagsmaður Sjómannafélags Reykjavíkur. Hann gegndi mörgum trúnaðarstörfum fyrir félagið, m.a. í Sjómannadagsráði, sat um 2ja ára skeið og mörg ASÍ-þing sem fulltrúi þess. 86 SJÓMANNADAGSBLAÐIÐ Tómas Gudjónsson Tómas Guðjónsson var fæddur 17. feb. 1907 á Dísastöðum, Sandvíkurhreppi í Árnessýslu. Foreldrar hans voru hjónin Guðjón Teitsson frá Auðsholti í Biskupstungum og Þuríður Hans- dóttir frá Skipum í Stokkseyrarhreppi og var Tómas fjórði í röðinni af tólf börnum þeirra hjóna. Tómas ólst upp í foreldrahúsum, en eins og nærri má geta voru efni ekki mikil til að styrkja eitt eða fleiri úr slíkum barnahópi til mennta, en til þess stóð hugur Tómasar. Fjórtán ára að aldri hélt hann til Reykjavíkur að leita sér menntunar og vinna fyrir sér jafnframt. En Tómas flutti alfarið til Reykjavíkur árið 1924 og réðst þá sem hjálparkokkur á togarann Menju, en þar var skipstjóri Karl Guðmundsson sem margir eldri Reykvíkingar muna, en hann starfaði árum saman við Slippfélagið í Reykja- vík. Árið 1927 réðst Tómas á Kveldúlfstogarann Skallagrím sem Guðmundur Jónsson frá Reykj- um stýrði og síðan á togarann Baldur. Lengst af var Tómas kyndari á þessum togurum en var þó falið öðru hvoru að leysa af sem vélstjóri, þótt ekki hefði hann þá hlotið menntun sem slíkur eða lokið tilskyldum prófum. Árið 1929 taldi Tómas sig reiðubúinn að taka stefnuna að áðursettu marki, að leita sér frekari menntunar. Þetta ár byrjaði hann nám í vél- virkjun hjá Vélsmiðjunni Hamri og síðan nám í Iðnskólanum og lauk þaðan prófi 1932. Næsta þrep steig Tómas ótrauður þótt peningaráð væru lítil, en kjarkur og vilji voru fyrir hendi og vélstjóraprófi lauk hann árið 1934 með ágætum vitnisburði. Strax að loknu námi í Vélskólanum réðst Tómas á togarann Ólaf sem vélstjóri. Hann var þar nokkur ár en nýhættur þegar skipið fórst með allri áhöfn. Mun Tómas hafa þrisvar borið sig í land úr skipum, sem skömmu síðar fórust. Eftir veru sína á Ólafi réðst Tómas til Eim- skipafélags íslands og varð þriðji vélstjóri á e/s Gullfossi. Þetta skip „fraus“ inni í Kaup- mannahöfn í heimsstyrjöldinni síðari og kom Tómas heim í hinni frægu Petsamoför m/s Esju ásamt hundruðum annarra Islendinga, sem innlyksa höfðu orðið í stríðinu í Danmörku og hinum Norðurlöndunum. Nokkru eftir þetta verða þáttaskil í lífi Tómasar. Hann er nýlega farinn af e/s Goða- fossi þegar hann var skotinn niður út af Garð- skaga og ræðst þá til starfa hjá Olíuverslun Is- lands h/f. Varð hann stöðvarstjóri félagsins á olíustöð þess á Klöpp og síðar nýju stöðinni í Laugarnesi. Árið 1955 hætti Tómas störfum hjá Olíu- verslun íslands. Starfrækti hann um tveggja ára skeið eigið bílaverkstæði ásamt bróður sínum en þá verða aftur þáttaskil í lífi Tómasar er hann réðst sem starfsmaður til Vélstjórafélags Islands. Tómas var þegar hér var komið vel kunnur öllu félagsstarfi og hóf sín félagsmálastörf snemma. Hann átti sæti í stjórn félags járnsmíðanema og var m.a. formaður félagsins árin 1929—1931 og í stjórn Vélstjórafélagsins var hann kosinn 1939 og formaður þess félags var hann í þrjú kjörtímabil eða árin 1948—1950. Erill starfsmanna sem hjá stéttarfélögum starfa er mikill og þekkja þar ekki aðrir betur til en í hafa komist. Samt tókst honum að leggja sinn drjúga skerf af mörkum við undirbúning- inn að stofnun Sparisjóðs vélstjóra, og hann vann við rekstur sjóðsins og átti sæti í stjórn hans til 1966. Um það leyti lét hann af störfum sem daglegur starfsmaður félagsins, en átti lengi fyrir og eftir það sæti í ýmsum stofnunum sjómanna fyrir vélstjórafélagið. Má nefna t.d. stjórn Landssambands lífeyrissjóða, stjórn Lífeyris- sjóðs sjómanna frá byrjun til 1968 og í stjórn Lífeyrissjóðs Eimskipafélags Islands, sömuleiðis lífeyrissjóðanna Skjaldar og Hlífar frá stofnun þeirra og um langt árabil. Eftir að hann lét að mestu af félagsmálastörfum rak hann fasteigna- sölu með Valdimar syni sínum. öll þessi störf Tómasar Guðjónssonar voru mikil að vöxtum en þó er ógetið um það starf hans sem honum þótti hvað vænst um, eins og reyndar má segja um fleiri sem þar hafa lagt hönd að og leggja enn, en það voru störf hans í þágu Sjómannadagssamtakanna. Löngu áður en hann tók sjálfur sæti í Sjómannadagsráði var hann einn fjölmargra sjómanna sem lagði mikið starf að mörkum við sjávarútvegssýninguna fyrri, sem samtök þessi stóðu fyrir í Grænmetis- skálanum við Sölvhólsgötu, vann Tómas þar sem sjálfboðaliði í sínu fyrsta sumarleyfi. Við sambærilega sýningu samtakanna, sem haldin var í íþróttahöllinni í Laugardal 1968 — „Is- lendingar og hafið“ — starfaði Tómas einnig, en þá sem aðstoðarframkvæmdastjóri. Tómas Guðjónsson átti sæti sem fulltrúi Vélstjórafé- lagsins í Sjómannadagsráði frá 1957—1982 eða samtals 25 ár og þar af í stjórn í 22 ár. Tómas átti því sinn stóra þátt í hinu merka uppbyggingarstarfi Hrafnistuheimilanna frá byrjun og annarra velferðar- og fjáröflunarmála sem samtök þessi hafa staðið að öll þessi ár. Að verðleikum var hann heiðraður á Sjó- mannadaginn 1978. Fyrir sitt mikilsverða framlag, alúð, áhuga og allt hið góða sem hann lagði til þessara mála, eru honum færðar þakkir nú. I minningargrein sem ég skrifaði um vin minn Tómas, get ég um áhuga hans á ræktunarstörf- um í ám og vötnum. Áhugi og þekking Tómasar á þessum málum var mikill. Þennan áhuga sagði
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92

x

Sjómannadagsblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannadagsblaðið
https://timarit.is/publication/557

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.