Sjómannadagsblaðið - 01.06.1994, Side 9
SJÓMANNADAGSBLAÐIÐ
7
„Mál málanna að halda merki
sjómannastéttarinnar á lofti á sem
myndarlegastan hátt“
- segir Guðmundur Hallvarðsson alþingismaður og nýkjörinn formaður Sjómanna-
dagsráðs, sem greinir hér m.a. frá stórhuga framkvæmdum sem hefjast munu á
komandi vori og sumri
„Þessi nýja heilsustöð mun hýsa sjúkraþjálfun, sundlaug og vœntanlega hverskyns
nudd- og líkamsþjáljúnaraðstöðu. “ (Ljósmynd Sjómannadagsblaðið / Björn Pálsson)
*
aðalfundi Sjómannadags-
ráðs á fyrra ári gerðust þau
tíðindi að Pétur Sigurðsson
frv. alþingismaður lét af starfl for-
manns eftir þriggja áratuga farsæit
starf. I hans stað var kjörinn sem
kunnugt er Guðmundur Hallvarðs-
son alþingismaður, sem á að baki
langan starfsferil innan sjómanna-
samtakanna og er þar því öllum
hnútum kunnugur og þá ekki síst
málefnum Sjómannadagsráðs
vegna náins samstarf við Pétur Sig-
urðsson og fleiri framámenn. I eft-
irfarandi spjalli spyrjum við Guð-
mund hvað helst sé á döfinni nú og
það reynist margt og ekki smátt í
sniðum - bygging nýrrar heilsumið-
stöðvar við Hrafnistu í Laugarásn-
um og hugað verður að byggingu
blokkar fyrir aldraða á sömu lóð.
Er þá hvergi. allt talið af því sem
ýmist er í gangi eða undirbúningi.
„Fyrst er rétt að greina frá því að hér
sunnanvert á lóðinni milli Norður-
brúnar og Hrafnistu er þegar búið að
teikna og samþykkja byggingu endur-
hæfingar- og sundlaugaraðstöðu fyrir
aldraða,“ segir Guðmundur.
Ekki er hér um ný áform að ræða:
Það hefur lengi verið ósk okkar í Sjó-
mannadagsráði að þessi hugmynd
yrði að veruleika og nú er loks í aug-
sýn að hún rætist. En hið óvenjuleg-
asta við þetta er ef til vill það að hér
erum við í fyrsta skipti komnir í sam-
starf við Reykjavíkurborg um stórar
byggingaframkvæmdir. Margt hefur
orðið þess valdandi að Reykjavíkur-
borg telur sér þetta mál skylt: A
íbúðasvæði nærri Hrafnistu í Laugar-
ásnum búa um 6000 manns sem teljast
í hópi aldraðra. Hefur fjöldinn sífellt
verið að aukast frá því er Sjómanna-
dagurinn tók Hrafnistu hér í Laugarási
í notkun árið 1957. Hefur það satt að
segja lengi verið að velkjast fyrir okk-
ur hví í ósköpunum samstarf Sjó-
mannadagsins og borgaryfirvalda hef-
ur ekki tekist löngu fyrr, þegar höfð er
í huga sú framúrstefna sem Sjó-
mannasamtökin mörkuðu í málefnum
aldraðra með byggingu Hrafnistu í
Reykjavík, sem Reykvíkingar og aðrir
landsmenn nutu góðs af.
En nú er þetta samstarf loks komið á
og lofar það góðu. Sé ég ekki annað
en að allar forsendur séu fyrir hendi til
þess að framvegis muni mjög náinn
og góður samvinnuandi ríkja milli
okkar og borgarinnar, þótt hann beri
seinna að en þurft hefði að vera að
mínu mati.“
Framkvæmdir
hefjast á vordögum
,,í ljósi þess mikla fjölda eldra fólks
sem í þessu hverfi býr, og ég hef getið
um, vonum við að hin nýja aðstaða
nýtist Hrafnistufólkinu og íbúunum
að Norðurbrún 1 sem best, en að
Norðurbrún 1 eru sem menn vita
íbúðir fyrir aldraða á vegum Reykja-
víkurborgar. Einnig því fólki sem
dvelst á hjúkrunar- og umönnunar-
heimilinu Skjóli sem er einnig hér á
lóð Hrafnistu, en þeim hjúkrunar-