Sjómannadagsblaðið - 01.06.1994, Qupperneq 10
SJÓMANNADAGSBLAÐIÐ
8
heimilum stöndum við að ásamt fjöl-
mörgum aðilum öðrum. Síðast en ekki
síst munu allir aðrir aldraðir íbúar
hverfisins geta komið og notað sér
þessa aðstöðu.
Fyrirmyndin er komin frá Hrafnistu
í Hafnarfirði, en þar höfum við haft á
að skipa góðum sjúkraþjálfurum, sem
og á Hrafnistu í Reykjavík. Og sann-
arlega á allt annað starfsfólk heimil-
anna lof skilið varðandi þjónustulund
við aldraða skjólstæðinga okkar.
Sjúkraþjálfararnir í Hafnarfirði hafa
rætt um hve einstök aðstaðan þar
syðra er, þ.e. aðstaða með flestum
þeim tækjum og búnaði sem við þarf
varðandi sjúkraþjálfun, hreyfingu í
sundlaug og heita potta. Og allt verður
þetta undir sama þaki. Erum við sann-
færðir um að þetta verk, sem vonandi
verður byrjað á nú á vordögum, muni
leiða af sér mjög aukna vellíðan fólks.
Höfum við enda orðið varir við geysi-
legan áhuga hjá vistfólkinu okkar hér
á Hrafnistu og í Norðurbrún 1, sem og
hjá öðrum íbúum í hverfinu.
Satt að segja voru ekki allir í Sjó-
mannadagsráði sannfærðir um að
þetta væri rétt hvað varðar tímaröðun
framkvæmda á vegum samtakanna.
Mér er það minnisstætt að eftir haust-
fund Sjómannadagsráðs á sl. ári kom
einn ágætur ráðsfulltrúi að máli við
mig hér í anddyrinu og sagðist verða
að tjá mér þá sannfæringu sína að
hann hefði ekki trú á að við værum að
gera hið rétta.
En meðan við stóðum þarna og
ræddum um framkvæmdina barst mér
óvæntur liðsauki. Til okkar kom aldr-
aður vistmaður sem gengið hafði aftur
og fram nálægt okkur á meðan við
spjölluðum. Sá ég að hann þurfti eitt-
hvað að ræða við mig, svo ég gerði hlé
á samræðunum við þennan ágæta full-
trúa og spurði manninn hvort hann
vildi koma einhverju á framfæri við
mig. ,,Já,“ Guðmundur,“ segir þá
maðurinn og svo hátt að nærstaddir
máttu vel heyra: „Eg vildi spyrja hve-
nær þið ætlið að byrja á sundlauginni.
Ég er orðinn gamall og þótt stutt sé
hér niður í Laugardalslaugina, þá er
það nú svo að þar er hraðinn og stærð-
in svo mikil að það er erfitt fyrir okkur
gamla fólkið að sækja þangað niður
eftir... Hvenær heldurðu að þið byrjið
á þessari sundlaug hérna?“ Ég svaraði
og sagðist vonast til að það yrði strax
nú á vordögum. „Ja, það er nú meira
guðslánið,“ sagði þá maðurinn. „Það
er mín heitasta ósk að ég fá að lifa svo
lengi að ég fái að synda í henni þó
ekki væri nema einu sinni, áður en ég
er allur.“
Þar með fór gamli maðurinn, en áð-
urnefndur fulltrúi úr Sjómannadags-
ráði sagði: „Hafi mér nokkurn tíma
snúist hugur á skammri stundu - þá er
það núna.“
Hugað að byggingu
á 32 íbúða þjónustublokk
„Það sem við einnig horfum fram til
um þessar mundir er bygging íbúða-
blokkar á norðurhluta lóðar Hrafnistu
í Laugarásnum. Þar er um að ræða 32
íbúða blokk sem standa mundi við
Kleppsveg og verður hún sérhönnuð
fyrir aldraða. Er þá átt við að við vilj-
um geta sagt með sanni að þar verði
séð fyrir þörfum aldraðs fólks eins og
best verður á kosið. Þar yrði neyðar-
bjalla í hverri íbúð, sem tengdist því
kerfi sem þegar er fyrir hendi í íbúð-
unum hér við Jökulgrunn. Þá höfum
við hugleitt að veita blokkinni sömu
þjónustu livað varðar mat, þvotta og
þrif. Mundi hjúkrunar- og næturvakt
sú sem til staðar er í núverandi bygg-
ingum jafnframt sinna þessum íbúum.
Eygjum við þá von að ráðast megi í
þessar framkvæmdir þegar nú fyrri
part sumars, ef af verður.“
Hjúkrunarálman við
Hrafnistu í Hafnarfirði
hagkvæmasti kosturinn
„Lengi höfum við alið með okkur
þann draum að ráðast í byggingu C-
álmunnar í Hafnarfirði, sem verður
hjúkrunarálma með 90 hjúkrunarrým-
um. Því ræði ég um álmu fyrir 90
manns að þar er um að ræða þá rekstr-
areiningu sem hagkvæmust er talin.
Enn höfum við bent yfirvöldum á að
bygging hjúkrunarálmu við Hrafnistu
í Hafnarfirði er sá alódýrasti kostur
sem hægt er að velja þegar um ný-
byggingu er að ræða.
Við ætlum að byggingarkostnaður
þessarar hjúkrunarálmu sé um 550
milljónir króna og er þá verið að tala
um fullbúna hjúkrunardeild. En stæði
hjúkrunarálman ein og sér og þyrfti að
byggja þar upp alla þá þjónustu sem
slíkri byggingu verður að fylgja er
verið að ræða um upphæð sem er í
kringum einn milljarður. Við veitum
mikla þjónustu á Hrafnistu í Hafnar-
firði eins og hér í Reykjavík, en eigum
þó eftir sem áður afar góða möguleika
og rými til að taka við auknum íbúa-
fjölda. Því vonumst við til að ná góðri
samstöðu um þessa framkvæmd með
bæjaryfirvöldum í Garðabæ, á Álftanesi
og í Hafnarfirði þá fram líða stundir.“
Arlega þarf að fjölga
vistrýmum fyrir aldraða
„Nú geta menn spurt hvort fram-
kvæmdaþörfinni varðandi byggingar
fyrir aldraða sé ekki senn fullnægt.
Því er þá til að svara að áætlað er að á
næstu árum muni þurfa rými fyrir um
300 manns. Til marks um hver þörfin
er hér á stór-Reykjavíkursvæðinu, þá
er rætt um að á annað hundrað Reyk-
víkingar séu nú vistaðir í íbúðum fyrir
aldraða utan sjálfs þéttbýlissvæðisins
- þ.e. á Suðurlandi og í öðrum lands-
hlutum. Þannig er þörfin og vandinn
geysilega mikill. Loks eru menn að
verða varir við að aldur fólks sem inn
á þjónustustofnanir aldraðra kemur er
sífellt að gerast hærri og heilsufarið
verra, en þetta hlýtur að kalla á enn
meiri þjónustu og umönnun."
6000 komu í sundlaugina 1992
„Það Grettistak sem sjómannasam-
tökin í Reykjavík og Hafnarfirði hafa
lyft í málefnum aldraðra er ótrúlegt.
Bæði Gísli heitinn Sigurbjörnsson á
Grund og okkar leiðandi menn á
þessu sviði á liðnum áratugum hafa
verið afar framsýnir. Hvað okkur í
sjómannasamtökunum snertir þá
munum við feta í fótspor þeirra eftir
mætti og leitast við að láta merkið
ekki falla.
Við byggingu Hrafnistu í Hafnar-
firði hefur ráðið einstök framúrstefnu-
hyggja hvað framsýni snertir og okkur
hefur þótt gaman þegar fulltrúar ým-
issa erlendra sjómannasamtaka hafa
heimsótt okkur og verið sýnt heimilið.
Þeir hafa orðið öldungis forviða.
Sama á við um fólk frá hinum Norður-
löndunum sem starfar í þessum geira
heilbrigðisþjónustunnar. Fyrir hefur
og komið að ágætir aðilar í læknastétt