Sjómannadagsblaðið - 01.06.1994, Page 13
SJÓMANNADAGSBLAÐIÐ
11
hægt verður að dvelja lengur eystra en
áður - fara fyrr á vorin og hafast þar
lengur við fram á haustið. Eiginlega er
ekkert því til fyrirstöðu að bústaðirnir
verði notaðir allt árið framvegis, þótt
þá verði að huga að því hvernig reka
skuli þjónustumiðstöðina á staðnum,
en þar eru fyrir hendi sundlaug, heitir
pottar, gufubað, leiktæki og annað.
Slíkan rekstur er auðvitað erfitt að
hafa í gangi allan ársins hring með
tilliti til fjölda dvalargesta sem á vetr-
um dveldu einkum um helgarnar.“
Hátíðarhöld í einstöku
umhverfí við Reykjavíkurhöfn
„Hátíðarhöld Sjómannadagsins munu
nú sem undanfarin ár fara fram á mið-
bakkanum við Reykjavíkurhöfn og
njótum við þeirrar glæsilegu aðstöðu
sem nú er þar fyrir hendi - og ég er
mjög stoltur af sem formaður hafnar-
stjórnar Reykjavíkurhafnar. Þarna er
nú yfirbragð og umhverfi orðið allt
annað en var og ég er sannfærður um
að við fáum fjöldann allan niður á
miðbakka til að fylgjast með því sem
þar fer fram. Að því er enda ákveðið
stefnt.
Að vísu er aðalatriðið hvað öll úti-
hátíðarhöld á íslandi snertir að veður-
guðirnir séu mönnum hliðhollir. Bið
ég að svo megi verða nú á Sjómanna-
daginn. En mál málanna er að halda
merki sjómannastéttarinnar á lofti á
sem myndarlegastan hátt.
Að endingu óska ég öllum íslensk-
um sjómönnum og fjölskyldum þeirra
gleðilegrar hátíðar og farsældar í
framtíðinni.“
AM
Þann 5. maí sl. var undirritaður samstarfssamningur mill Hrafnistu í Reykjavík og
Reykjavíkurborgar um byggingu endurhœfingaraðstöðu og sundlaugar við heimilið.
ÞeirArni Sigfusson borgarstjóri og Guðmundur Hallvarðsson formaður Sjóman-
nadagsráðs undirrita hér samninginn sem markar merk tímamót, því hér efna þessir
aðilar til stórframkvœmda í sameiningu fyrsta sinni.
Á Hrafnistu í Laugarásnum í Reykjavík efla starfsmenn félagsandann og gleðja augu
og eyru vistmanna með söng Hrafnistukórsins. Kórinn var stofnaður jyrir tveimur
árum og eru félagar 17 til 20 talsins. Nóg tilefni gefast til að koma fram: Sungið er á
vor- og haustfagnaði á heimilinu og á stórhátíðum og önnur dvalarheimili hafa verið
heimsótt. Tónleika hefur kórinn efnt til íAskirkju. Æfingar eru vikulega, en þegar
meira stendur til er farið í œfingarbúðir, svo sem í Skálholt. Söngstjóri erArna
Grétarsdóttir og sést hún hér ásamt hluta kórfélaganna.