Sjómannadagsblaðið - 01.06.1994, Side 15
SJÓMANNADAGSBLAÐIÐ
13
„Þetta hefur verið gífurlega
ánægjuleg vinna“
Rætt við Halldór Guðmundsson arkitekt um fyrirhugaðar framkvæmdir á
vegum Sjómannadagsráðs og það sem afrekað hefur verið á síðustu árum
„ Umrœðurnar um framkvœmdirnar voru gjarna líflegar á œskuheimili mínu. “ (Ljósm.
Sjómannadagsbl.l Björn Pálsson)
Halldór Guðmundsson arkí-
tekt hefur haft veg og vanda
af teikningu flestra helstu
mannvirkja sem reist hafa verið á
vegum Sjómannadagsráðs allt frá
því er byggingu A álmu Hrafnistu í
Hafnarfirði lauk. Hann hefur því
teiknað hjúkrunardeildina við
heimilið auk þjónustuhverfanna og
lokið uppdrætti nýrrar hjúkrunar-
álmu sem vonast er til að fyrr en
seinna verði hafnar framkvæmdir
við. Enn er hann höfundur teikn-
inga sem fyrir leggja af nýrri sund-
laug við Hrafnistu í Reykjavík og
níu hæða fjölbýlishúss sem í fram-
tíðinni er áætlað að rísa muni á lóð
Sjómannadagsráðs við Kleppsveg.
Er þá ekki nærri allt talið af störf-
um hans fyrir sjómannasamtökin.
Halldór er sonur Guðmundar H.
Oddssonar skipstjóra, eins mesta
baráttumanns Sjómannadagsráðs
um langt árabil og formanns Skip-
stjóra- og stýrimannafélagsins Öld-
unnar. Móðir hans, Laufey Hall-
dórsdóttir, var formaður kvenfélags
Öldunnar og þegar á unglingsárum
gerðist Halldór því vel kunnugur
starfi samtakanna Sjómannadag-
urinn í Reykjavík og Hafnarfirði.
Sjómannadagsblaðið átti við Hall-
dór eftirfarandi viðtal um þau
verkefni sem fyrirhuguð eru og
hvar þau eru á vegi stödd, svo og
ýmislegt sem lýtur að því er þegar
hefur verið afrekað. Við byrjum þó
á að spyrja hann um námsferil hans
og upphaf þess er hann tók að
starfa fyrir sjómannasamtökin.
„Ég lærði smíðar, en fór síðan í bygg-
ingarfræði í Danmörku og þá í Bygge-
teknisk Höjskole í Kaupmannahöfn,"
segir Halldór. „Árið 1976 útskrifaðist
ég sem arkitekt frá Konunglega lista-
háskólanum í Kaupmannahöfn. A
námstíma mínum kynnti ég mér sér-
staklega öldrunarmál og lokaverkefn-
ið við háskólann var einmitt íbúðir og
heimili fyrir aldraða. Þegar heim kom
árið 1976 hóf ég störf við Teiknistof-
una við Ármúla hjá Gísla Halldórs-
syni arkitekt og hef starfað þar óslitið
síðan, fyrst sem starfsmaður en er nú
meðeigandi. Öldrunarmálin, sem ég
sérhæfði mig í, hafa verið aðalstarfs-
vettvangurinn og fyrstu verkefnin á
þeim vettvangi voru einmitt við
Hrafnistu í Hafnarfirði. Senn hófst
svo mikið starf við endurbætur á
Hrafnistu í Reykjavík, en mikið upp-
byggingarstarf var unnið á vegum sjó-
mannasamtakanna um þessar mund-
ir.“
Ráðist í byggingu
hjúkrunardeildar
„Þegar ég kom að framkvæmdunum í
Hafnarfirði var búið að byggja A-álm-
una sem áður segir, vistálmuna sem
tekin var í notkun 1977, og farið að
hyggja að byggingu hjúkrunarheimil-
is. Á þeim árum sáu menn þó ekki
fyrir sér að byggt yrði meira en ein
álma. Því var fyrstu áformunum
breytt, en þau gerðu ráð fyrir þrem
álmum. Því var hús hjúkrunardeildar-
innar reist framan við A-álmuna sem
sjá má, enda hagkvæmast talið að
deildin tengdist A-álmunni á þennan
máta.
Þegar í byggingu hjúkrunarálmunn-
ar var ráðist var ákveðið að boðið
skyldi upp á meiri þjónustu en þá tíðk-
aðist á slíkum heimilum. Þar á meðal
var ákveðið að sundlaug og endurhæf-
ingaraðstaða skyldu vera á sama stað,
þannig að öll sú aðstaða sem stoðdeild
af þessu tagi þarf væri í sama rými:
sjúkraþjálfun, endurhæfing og sund-
laug. Þá var barnaheimili fyrir börn
starfsmanna komið þarna fyrir.“