Sjómannadagsblaðið - 01.06.1994, Page 18
SJÓMANNADAGSBLAÐIÐ
16
að haldi eftir að ég tók sjálfur að vinna
á vegum Sjómannadagsráðs. Þá var
gott að hafa þessa undirstöðu og
nokkurn skilning á hvílíka þýðingu
starfið hafði. Það gefur mikið að þekkja
bakgrunninn, og það hefur stuðlað að
því að framkvæmdirnar hafa verið
mér mikið áhugamál persónulega og
ekki minna en þeim sem í fylkingar-
brjósti hafa staðið. Ég hef nú unnið
það lengi við Hrafnistuheimilin og
aðrar stofnanir samtakanna að ég man
tímana tvenna á sinn hátt. Það hefur
oft komið mér að gagni að vita hví
hlutunum var á sínum tíma hagað eins
og raun varð á en ekki öðruvísi.
Stundum getur það valdið því að ég
verð tregur til að breyta einhverju at-
riði, því málin hafa alltaf verið vand-
lega hugsuð áður en framkvæmt er.“
Ekkert lét hann standa í vegi
fyrir sér
„Ég vil ekki láta hjá líða að geta um
það ágæta samstarf sem ég átti löng-
um við Pétur Sigurðsson forstjóra. Af
reynslu hans hef ég mikið lært. Ég
hafði fylgst með hvemig staðið var að
verki þegar þeir faðir minn og Pétur
voru að reisa A álmu Hrafnistu í Hafn-
arfirði og man ætíð hve hugmyndaríkur
Pétur var og drífandi. Ekkert lét hann
standa í vegi fyrir sér og hann var á
undan samtímanum í ótal mörgu.
Víst var Pétur oft ráðríkur, en kraft-
urinn var slíkur að alltaf mátti eiga
von á hringingu frá honum hvenær
sólarhringsins sem var.
Þetta hefur verið gífurlega ánægjuleg
vinna. Ég hef líka fengið að njóta mín
vel á mínu sviði og verið sýnt mikið
traust. Það vil ég þakka þeim ágætu
mönnum sem ég hef starfað fyrir og
hve gott hefur verið að vinna með
þeim. Þegar ég byrjaði voru allt aðrir
menn í stjóm Sjómannadagsráðs en nú.
En þótt menn komi'óg fari og hver hafi
sitt verklag breytist þessi ágæti sam-
starfsandi ekki né viljinn til að allt sé
svo vel af hendi leyst sem verða má.
Núverandi stjórn og stjórnendur
undir forystu Guðmundar Hallvarðs-
sonar heldur ótrauð áfram því upp-
byggingar- og forystustarfi sem Sjó-
mannadagsráð hefur alla tíð haft í
öldrunarmálum.“
AM
Brjóstmynd afPétri Sigurðssyni fyrrverandi formanni
Sjómannadagsráðs var afhjúpuð að kvöldi þess 5. maí sl. á
Hrafnistu í Hafiiarfirði í minningu áratuga giftudrjúgs starfhans í
þágu sjómannasamtakanna. Myndina gerði Gestur Þorgrímsson
myndhöggvari og myndlistarmaður, en forstöðukona heimilisins,
Sigríður Jónsdóttir, afhjúpaði. Pétur ávarpar hér
viðstadda við athöfinina.
Til umboðs- og sölumanna
Sjómannadagsblaðsins um land allt
Aðstandendur Sjómannadagsblaðsins
hvetja þá sem annast sölu og dreifingu blaðins
til að gera skil til skrifstofu Sjómannadagsráðs að
rafnistu í Laugarási í Reykjavík sem allra fyrst eftir
Sjómannadag.
Þá biðjum við alla sem liggja
með eintök af eldri árgöngum að senda okkur
þau. Ýmsir hafa leitað eftir að eignast eldri blöð
sem eru á þrotum.