Sjómannadagsblaðið

Volume

Sjómannadagsblaðið - 01.06.1994, Page 38

Sjómannadagsblaðið - 01.06.1994, Page 38
SJÓMAN NADAGSBLAÐIÐ 36 það að ráði að Vélstjórafélagið keypti húsið og hafði í huga að það yrði eins- konar minningarhelgidómur um Jes- sen. Þangað var skrifstofa félagsins jafnframt flutt og um leið var Spari- sjóði Vélstjóra leigður sá eignarhlutur sem við áttum á Bárugötu 11, en sparisjóðurinn hafði verið stofnaður árið 1961. Þar var sparisjóðurinn svo til húsa næstu þrjú árin eða þar til hann flutti í Nóatún, en Jón Júlíusson eigandi verslunarinnar Nóatúns var formaður stjórnar hans. Svo ég haldi áfram að rekja þessa sögu þá er það einn góðan veðurdag að Jón Júlíusson kemur til mín og seg- ir mér að við Borgartún sé lóð á lausu. Ég sat þá í stjórn FFSI og biður hann mig að athuga það innan sjómanna- samtakanna hvort vilji muni fyrir hendi til að festa sér lóðina, en hún sé vel í sveit sett - mitt á milli gömlu hafnarinnar í Reykjavík og hinnar nýju Sundahafnar. Ég beið ekki boð- anna með að leggja hugmyndina fyrir fund og var samþykkt að reyna að koma þessu í kring. Fórum við einir þrír á fund borgarstjóra, en hann var þá Geir Hallgrímsson. Hét hann að greiða fyrir málinu og skyldum við borga 400 þúsund krónur í gatnagerð- argjöld. Gátum við samið um að borga þá fjárhæð á löngum tíma, en efna- hagurinn var heldur naumur hjá félög- unum þá. Ég hætti afskiptum af félagsmálum skömmu síðar og rek þessa sögu því ekki nánar, en nýir menn komu að málunum sem hrintu framkvæmdum af stað. En vænt þykir mér um að hafa átt þátt í að koma þessu málefni af stað í upphafi. Mér er kunnugt um að það hræddi ýmsa í byrjun að Spari- sjóður vélstjóra, sem þarna átti að fá aðstöðu og var orðinn mjög öflugur, mundi verða ráðríkur er að ráðstöfun byggingarinnar kæmi. En sá ótti hefur reynst ástæðulaus og mun nær sanni að sparisjóðurinn hafi gefið þessum félögum öllum byr undir báða vængi.“ Hlynntur stofnun sjómannaflokks „Alltaf er ég með hugann við málefni sjómanna. Stundum hefur verið rætt um að stofna sjómannaflokk og bryddaði Guðmundur heitinn Jensson oft upp á þeirri hugmynd. En við töld- um alltaf að ekki væri rétt að við stimpluðum okkur þannig, því innan sjómannastéttarinnar væru menn með mismunandi stjórnmálaskoðanir og væri réttara að þeir beittu sér innan stjórnmálaflokkanna gömlu. En nú þegar svo mikið er rætt um þýðingu sjávarútvegsins fyrir þjóðar- búið og að honum þrengt um leið á svo margvíslegan hátt finnst mér að sjómenn séu ekki hafðir nægilega mikið með í ráðum. Því er ég nú miklu fremur en fyrr á því að þessi gamla hugmynd Guðmundar Jenssonar um sjómannaflokk sé raunhæfur kostur. Slíkan flokk mundi ég styðja, kæmu menn sér þá á annað borð saman um hverjir ættu að fara í framboð. Ég játa að klofningur FFSÍ eykur ekki á bjart- sýni mína um að þetta geti tekist. En ég vona einlæglega að þótt samböndin standi nú sér - skipstjórnarsamband- ið, farmannasambandið, vélstjóra- sambandið og sjómannasambandið, þá takist þeim að vinna sem mest sam- an - og kannske að stofnun sjómanna- flokks sem ég tel að eigi fullan rétt á sér núna.“ „Af einkahögum mínum er það að segja að sex næstu árin eftir að ég hætti félagsstörfum var ég yfirvél- stjóri Hitaveitunnar. En eftir að ég lét af því starfi tók ég að kenna við Iðn- skólann í Hafnarfirði. Fann ég þá vel hve félagsmálin höfðu gefið mér mik- ið en reynsla mín af þeim kom mér að góðu haldi í allri umgengni við nem- endur mína. Ég kenndi til síðustu ára- móta, en fékk þá aðkenningu af hjartakveisu og má segja að ég sé í hvíld nú um sinn. Konan mín er Asdís Einarsdóttir og eigum við eina fósturdóttur, sem nú er 16 ára gömul. En þótt ég sitji á friðar- stóli um sinn fylgist ég með af áhuga og er reiðubúinn til að láta enn að mér kveða ef ég fyndi að kraftar mínir gætu á einhvern hátt orðið mínum gömlu félögum og stétt þeirra að gagni.“ AM Kveðjur til sjómanna. Neðanskráð fyrirtæki og stofnanir senda sjómönnum árnaðar- og heillaóskir á sjómannadaginn 1994 Kveðja frá Tálknafirði: Hraðfrystihús Tálknafjarðar hf. Kveðja frá Akranesi: Haraldur Böðvarsson og Co.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110

x

Sjómannadagsblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sjómannadagsblaðið
https://timarit.is/publication/557

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.