Sjómannadagsblaðið

Volume

Sjómannadagsblaðið - 01.06.1994, Page 46

Sjómannadagsblaðið - 01.06.1994, Page 46
SJÓMANNADAGSBLAÐIÐ 44 Neskaupstað 1943 og því meira í Reykjavík 1946. Eg gerðist þá vél- stjóri á bátum uns ég dreif mig í Vél- stjóraskólann, en honum lauk ég 1952. Ég gerðist þá umsvifalaust 1. vélstjóri á Goðanesinu frá Neskaup- stað sem síðar fórst við Færeyjar. Þar var ég um borð uns ég 1953 var beð- inn um að fara einn túr sem 1. vélstjóri á Neptúnusi hjá Tryggva Ofeigssyni. Þeir túrar urðu fleiri eða tíu ár alls áður en yfir lauk. Ég er ófeiminn að geta þess að það var Tryggvi sjálfur sem fór fram á það við mig - en ég hef aldrei sótt um vinnu á ævi minni. Ég var á skipinu undir stjórn þess fræga aflaskipstjóra Bjarna Ingimarssonar og fór alltaf ágætlega á með okkur, enda var ég á Neptúnusi í tíu ár.“ Byrjaði í 48 fermetra bílskúr ,,Ég hóf sjálfstæðan atvinnurekstur 1963, byrjaði í 48 fermetra bílskúr. Senn hafði ég svo mikið að gera að ég varð að vísa frá mér verkefnum og þar á meðal stundum til Vélsmiðju Sig- urðar Sveinbjörnssonar að Skúlatúni 6. Einn daginn lagði Sigurður til að ég keypti af sér verkstæðið og það varð úr að ég keypti húsnæðið og mikið af verkfærunum - án þess að ráðgast við neinn bankastjóra. Það var árið 1965. En eftir þrettán ár var orðið allt of þröngt um mig í Skúlatúninu og ég fór að leita fyrir mér um rýmra húsnæði. Það fann ég hér að Súðarvogi 4 og flutti mig hingað 1978. Fyrst var ætl- unin að ég yrði með húsnæðið á leigu en ég festi kaup á því innan nokkurra daga. Lóðin var 7000 fermetrar. Hér hefur starfsemin vaxið geisilega og hef ég hérna 5000 fermetra gólfpláss." Upphafið var gömul Bolinder-vél ,;En við ætluðum að ræða um safnið. Ég hef líklega alltaf verið haldinn söfnunarnáttúru, þótt ég gerði mér ekki grein fyrir því - hef haldið upp á ýmsa muni og á meira að segja fyrstu bólusetningarvottorðin mín og próf- skírteinin úr barnaskólanum! En snemma tók ég að halda til haga ýms- um munum sem lutu að skipum og útgerð. Fyrsti gripurinn er Bolinder- vél sem ég eignaðist fyrir um 30 árum. Síðan hef ég stöðugt verið að sanka að mér gömlum gripum. Það kostaði mikinn undirbúning að koma upp húsnæðinu sem hýsir safn- ið. Skálinn sem smiðjan hjá mér er í er með 10,5 metra vegghæð og yfir kem- ur rjáfrið. Ég sá að það mundi ekki þrengja að smiðjunni þótt ég setti upp loft yfir henni og það ákvað ég nú að gera. Bita fékk ég flesta svo að segja gefins og eru þeir af þeim gæðum að þeir skapa langtum meira burðarþol en krafist er. Svo kom þetta eitt af öðru en framkvæmdin tók hér um bil ár að mig minnir. Gólfflöturinn er 340 fermetrar. Næstu árin fóru í að gera munina sem ég var búinn að draga að mér sýningarhæfa. Mikið bíður þó lagfær- ingar enn.“ Fjöldi sýningarmuna bíður í geymslum „Nú getur hér að líta um 3000 muni og hundruð hluta bíða enn í geymsl- um eftir að vera gerðir í stand, svo safnið er alltaf að vaxa. Ekki þarf ég að hafa einn fyrir því að safna öllu þessu, því stöðugt er verið að gefa mér hluti - stundum heilu bílfarmana! Safnið á marga velunnara. En svo vikið sé að nokkru því sem athygli vekur hér inni má benda á þann hluta af safninu sem snertir síld- veiðar á árabilinu 1926-1960 eða þar um bil. Hér eru ótal gerðir af nóta- hringjum og tromlum, davíður, tvö handsnúin snurpuspil, fjöldi af kopar- skjöldum sem notaðir voru til að merkja síldartunnur og þannig gæti ég haldið lengi áfram. Þetta er einstæð heimild um þessar veiðar og getur ekki eignast sinn líka úr þessu. Þá ber hér mikið á blökkum af gam- alli og löngu úreltri gerð, margar að miklu leyti úr tré. Hér eru líka svo- nefndar ,,jómfrúr“, sem notaðar voru til að strekkja reiðann á gömlu segl- skútunum okkar. Allt er þetta upp- runalegt - engar eftirlíkingar. Þá er hér veglegt úrval af gömlum keðjum, sem ekki sjást lengur. Þær voru handsmíðaðar og ekkert smá- verk sem að baki þeirri smíði hefur legið. Þegar ég hef fengið þær í hend- ur hafa þær oftast verið brynjaðar af ryði. Því fann ég upp sérstaka aðferð til þess að fægja þær. Ég útvegaði mér 3-400 lítra loftkút og setti festingar á báða enda hans. I kútinn lét ég svo nokkuð af sandi, renndi síðan keðjun- um ofan í hann og lét gamlan fræsara knýja kútinn hring eftir hring í 2-3 klukkustundir. Þá var allt ryðið farið af þessum gömlu keðjum og að slitinu frátöldu litu þær nú ágætlega út.“ Glóandi komápsar og vélsímar ,,Á sérstökum palli hér á safninu hef
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110

x

Sjómannadagsblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sjómannadagsblaðið
https://timarit.is/publication/557

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.