Sjómannadagsblaðið - 01.06.1994, Blaðsíða 60
SJÓMANNADAGSBLAÐIÐ
58
Sjómannadagurinn í Hafnarfírði 1993
Hátíðarhöld Sjómannadags-
ins í Hafnarfirði 1993 hóf-
ust laugardagsmorguninn
5. júní með komu björgunarbátsins
„Hannesar Hafstein“ til Hafnar-
fjarðar og var báturinn til sýnis
fram yfir hádegi.
Kl. 16.00 sama dag fór fram fót-
boltakeppni skipshafna á íþróttasvæði
Hauka, „Ásvöllum.“ Var keppnin
mjög svo jöfn og skemmtileg og með
góðum tilþrifum og Maradonna-upp-
hlaupum. Fór svo að skipshöfnin á
„Sjóla“ sigraði annað árið í röð, en lið
þeirra var svo skipað: Jón Hannesson
fyrirliði, Karl Daníelsson, Þröstur
Ingvarsson, Sigurður Jóhannsson,
Gunnar Sigurðsson, Reynir Hilmars-
son, Iiilmar Hilmarsson, Kjartan 01-
afsson, Baldvin Guðjónsson, Ómar
Ásgeirsson, Stefnir Skúlason og Sig-
mar Friðbjörnsson. Þjálfari var Guð-
mundur Hjörleifsson. - Úrslit skipuð-
ust annars svo: Sjóli, Haraldur Krist-
jánsson, Venus og Ymir.
Séra Gunnþór Ingason messaði í
Hafnarfjarðarkirkju kl. 11.00 á sunnu-
dagsmorgun og lásu þrír sjómenn ritn-
ingargreinar. Þeir voru Magnús Þor-
steinsson, Hörður Magnússon og Júlí-
us Sigurðsson, en Júlíus var einn af
heiðurskörlum dagsins.
Barnasigling hófst á hádegi og var
þátttaka mikil enda veður gott. Fóru
sum skipin þrjár ferðir og voru þó
frystitogarar þétt skipaðir fólki með
börn sín. Sveit Slysavarnarsveitarinn-
ar „Fiskakletts“ annaðist öryggið á
svæðinu og fylgdi skipunum eftir á
gúmbátum sínum ásamt fjölda
skemmtibáta.
Kl. 14.00 var útihátíðin sett við fyrr-
um hús Bæjarútgerðar Hafnarfjarðar
af Guðmundi Olafssyni. Þulur var
Gestur Sigurðsson skipstjóri. Ræðu-
menn voru þau Ingvi Einarsson fyrir
sjómenn, Ester Kláusdóttir fyrir
Slysavamadeildina „Hraunprýði“ og
Eiríkur Magnússon fyrir Útvegs-
mannafélag Hafnarfjarðar.
Guðmundur Ólafsson heiðraði aldr-
aða sjómenn sem að þessu sinni voru:
Júlíus Sigurðsson skipstjóri, Einar
Jónsson vélstjóri, Símon Marjónsson
Frá heiðrun sjómanna á Sjómannadeginum 1993 í Hajharjirði. Heiðraðir vorufimm
aldnir sjómenn sem allir höfðu stundað sjófrá barnæsku til fullorðinsára. Lengst til
vinstri er Guðmundur Olafsson sem heiðraði fimmenningana, en þeir eru talið frá vin-
stri: Þorlákur Sigurðsson og kona hans Elísabet Pétursdóttir, Júlíus Sigurðsson og
kona hans Asta Magnúsdóttir, Símon Marjónsson, Margrét Kristjánsdóttir og maður
hennar Einar J. Jónsson, Oddlaug Valdimarsdóttir og Aðalsteinn Þórðarson.
Þessir fjórir voru heiðraðir á Sjómannadeginum í Hafnarfirði í hitteðfyrra - 1992.
Frá vinstri: Jón Strandberg og kona hans Elín Olafsdóttir, Guðmundur Olafsson og
kona hans Arnfríður Arnórsdóttir - Helgi Einarsson sem heiðraði fjórmenningana —
Ingigerður Karlsdóttir og maður hennar Einar Líkafrónsson og Olafur Brandsson og
kona hans Fanney Magnúsdóttir.