Sjómannadagsblaðið

Volume

Sjómannadagsblaðið - 01.06.1994, Page 72

Sjómannadagsblaðið - 01.06.1994, Page 72
SJOMANNADAGSBLAÐIÐ 70 ÞURÍÐUR FORMAÐUR Hún er þjóðfrægust allra kvenna sem sjó hafa stundað hér við land Þjóðfrægust þeirra kvenna sem sjó hana stundað hér við land er Þuríður Einarsdóttir. Hún var fædd 1777 að Stéttum í Stokkseyrarhreppi og voru foreldr- ar hennar hjónin Helga Bjarnadótt- ir og Einar Eiríksson, formaður og bóndi á Stéttum. Um Þuríði ritaði Brynjúlfur Jónsson frá Minna-Núpi bókina „Sagan af Þuríði formanni og Kambránsmönn- um“, sem gefin var út í Reykjavík 1941 og aukin og endurskoðuð útgáfa 1975. Sagan er rituð af manni sem sá Þuríði á efri árum hennar og var hún í vináttu við foreldra Brynjúlfs og fleira skyldfólk hans. Munnlegar heimildir hefur ekki skort, en það sem á vantar um samanburð við ritaðar heimildir hefur prófessor Guðni Jónsson unnið við útgáfu og endurútgáfu sögunnar. Kambsránið A fyrstu áratugum nítjándu aldar var agasamt í Árnessýslu og óbótamál upplýstust ekki, svo að ofbeldismenn ógnuðu öryggi almennings og eignum efnamanna. Rán var framið að bænum Kambi í Flóa aðfaranótt 9. febrúar 1827. Sýslumaðurinn, Þórður Svein- björnsson, var nýr í embætti og var honum mikið í mun að upplýsa málið. Sýslumaður kvaddi fjölda fólks úr Stokkseyrarhreppi til yfirheyrslu og þar á meðal Þuríði Einarsdóttur. Hún var kvödd á fund sýslumanns þegar hún var að bika bát sinn og fór í skyndi í vinnufötum á fund hans. Um þetta atvik segir í Sögunni af Þuríði formanni og Kambránsmönnum: Þuríður sagði að sendimaður hefði rekið svo á eftir sér að hún hefði eigi fengið að hafa fataskipti - „hefði ég þó ekki átt að koma fram fyrir yður í þessum búningi.“ „Jafnt fyrir mig sem aðra,“ segir hann. „Ég hef heyrt fyrr en nú að þú gangir hversdagslega í karlmannsbún- ingi. En til þess þurftirðu að sækja um leyfi og það skal ég útvega þér, ef þú gefur mér vísbendingu um hverjir það Þuríður formaður. Þetta mun eina mynd- in sem til er afþessum kvenskörungi. Myndina teiknaði Finnur Jónsson á ■ Kjörseyri sem þekkti Þuríði á yngri ár- um sínum. muni vera sem rænt hafa í Kambi.“ Þuríði var ekki um það gefið að hafa afskipti af þessu máli, en féllst þó á nauðsyn þess að ofbeldisseggir yrðu uppvísir að sekt sinni. Þar með var Þuríður orðin rannsóknarmaður, vegna þessa ömurlega sakamáls og þar er kveikjan að ritun sögunnar af sjókonunni og formanninum. Upphaf sjómennskuferils Þuríðar var með þeim hætti sem Brynjúlfur Jónsson segir frá í sögu sinni: Fyrsti róður Þuríðar „Einar bóndi var formaður og vandi Bjarna son sinn snemma við sjóróðra, enda var Bjarni svo bráðþroska að hann var til fulls hlutar, þá er hann var 14 ára. Þuríði langaði mjög til að koma á sjó og bað föður sinn oft um það. En þá var það alltítt í Stokkseyr- arhreppi að kvenfólk reri á sjó með karlmönnum. Þá var Þuríður 11 vetra er hún fékk í fyrsta sinn leyfi til að sitja í bátnum. Það var um vor í góðu veðri. Hún fór í skinnklæði er Bjarni átti og voru þau henni mikils til of stór, en sjóvettlingarnir þó síst við hennar hæfi, því hún var handsmá. Þá voru þar tíðkuð haldfæri og vildi Þur- íður fá að renna færi sem hinir er á bátnum voru. Henni var veitt það. Undir eins og færi hennar kom í botn kom fiskur á öngulinn; það var ýsa. Þuríður tók að draga og var eigi lítið í hug, en það vildi ekki ganga greitt; hún var óvön og orkulítil og sjóvett- lingarnir til tálmunar. Gekk svo um stund að ýmist dró Þuríður færið eða ýsan dró það úr höndum hennar. Þá féll vettlingurinn af annarri hendi hennar; þóttist hún þá fá betra átak og fleygði hinum líka, en ekki sleppti hún færinu. Tók nú ýsan að mæðast og lauk svo að Þuríður náði henni. Hún renndi þegar aftur og kom þegar önn- ur ýsa á öngul hennar. Fór líkt með hana og hina. Þetta gekk hvað eftir annað. Undir eins og Þuríður náði botni var fiskur á önglinum. Hún hafði raunar afl við ýsu þá, en hún komst brátt upp á það dráttarlag að hún ofþreyttist eigi, gaf þó eigi fiskin- um færi á að losa sig, en náði honum ávallt að lyktum. Sá faðir hennar að tilvinnandi var að lofa henni að róa, er hún var fisknari en flestir aðrir. Lét hann því gera henni hæfileg skinn- klæði og hæfilega sjóvettlinga og hafði hana svo til hálfdrættis þetta vor út og tvö næstu vor á eftir. Vetrarver- tíðirnar mátti hún eigi róa, því að þá var hún að stunda barnalærdóminn. Hún var fermd á 14. aldursári.“ Kafli úr riti Brynjúlfs Jónssonar, sem segir frá fyrstu sjósóknarárum Þuríðar er tekinn hér upp: Fyrstu sjósóknarárin „Þá var Þuríður um fermingaraldur er hún missti föður sinn. Varð hann sótt- dauður. Helga bjó með börnum sínum nokkur ár og var Bjarni fyrir búinu.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110

x

Sjómannadagsblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sjómannadagsblaðið
https://timarit.is/publication/557

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.