Eimreiðin - 01.04.1928, Qupperneq 28
124 KAIRO-FÖR eimreiðiN
og kaupandi fara báðir það, sem þeir komast. Það þarf baeði
góðan tíma og mikla þolinmæði til þess að ganga í sölubúðir
í Austurlöndum. En Norðurálfumenn eru auðsjáanlega vel
séðir viðskiftavinir þarna hjá Aröbunum. Þeir vita, að hvíta
fólkið lætur mikið eftir sér og er óprúttið á féð, margt hvað,
þegar eitthvað girnilegt er á boðstólum. Og á hinn bóginn er
þarna margskonar glæsilegur varningur, gerður af mikilli list
og með öðru sniði og gerð en venjulegt er með hvítum
mönnum. Það verða því oft mikil viðskifti.
I annað sinn fórum við í þann hluta borgarinnar, sem
Koptarnir búa í; það er norðausturhluti borgarinnar. Koptar
eru að ytri einkennum minst breyttir af öllum afkomendum
Forn-Egyfta. Þeir eru kristnir og eiga merkilegan þátt í sögu
kristinnar kirkju. í þessu hverfi er alt miklu kyrlátara og fá'
tæklegra en þar sem Arabarnir búa. Mikið var þar um Gyð-
inga og allóþrifalegt. Götuskipan er hin sama og í Araba-
hverfinu: Göturnar greinast og enda eins og vetlingsþumlar-
Einnig fórum við í »gamla bæinn«, sem er syðsti hlutinn
meðfram ánni að austan. Þar var minst um dýrðir. Þar sýndi
Mohamat okkur kirkju eina, sem hann sagði, að væri nefnd
eftir Maríu mey, vegna þess, að ]ósef og María hefðu áð
með barnið á staðnum, sem kirkjan stendur á. Ekki langf
þaðan sýndi Mohamat okkur annan stað, sem hann kvað vera
jafn sögufrægan meðal Mohametstrúarmanna, Gyðinga og krist-
inna manna. »Þetta«, sagði Mohamat, og benti á dálít>nn
sandodda út í ána, »er staðurinn, þar sem dóttir Faraós fann
Móse í körfunni forðum«. Hér dugðu engin mótmæli, og M°'
hamat sagði, að við mættum reiða okkur á það, að þe^a
væri hinn eini rétti staður, þar sem hinn frægi viðburður
hefði skeð, en allir aðrir staðir við Nílárfljót, sem miður vand-
aðir fylgdarmenn sýndu ókunnugum ferðamönnum í þesSl1
skyni, væru með öllu ómerkilegir í þessu sambandi. En sefi<5
kvað hann tímans tönn hafa nagað upp. Mohamat var maelskuf
og sagðist skyldi ábyrgjast þetta.
Sá hluti borgarinnar, sem hvítir menn búa í, er miklu fa^'
egri og þokkalegri en aðrir borgarhlutar, eins og við er að
búast. Göturnar eru settar trjám, torgin víð, og mikið u01
stórhýsi og trjágarða, glæsilegar sölubúðir og stórvaxin veit