Eimreiðin - 01.04.1928, Page 72
168
FRÁ GRÍMSEV
EIMREIÐIN
mundssonar málara, — til Grímseyjar. Gerði hann töluvert
ásamt Arna Þorkelssyni til að bæta hag eyjarskeggja, þó á-
rangurinn yrði eigi svo stórfeldur sem skyldi; bæði var það,
að menn hafa verið tregir til nýbreytni og séra Pétur orðinn
grímseyskur í hugsunarhætti, eftir langa dvöl hér.1) Þó hafa
Partuv af Sandvík.
(Verzlunarhúsin, — til hægri handar sést bærinn Efri-Sandvík).
þeir Árni áorkað töluverðu í félagi, en kali og rígur mun
töluverður hafa verið milli þeirra höfðingjanna á Miðgörðum
og Sandvík, og mun það hafa gert sitt til að draga úr sam-
vinnu, þó áberandi erjur yrðu það aldrei. Séra Pétur hefur
verið gáfaður, skáldmæltur vel og frábær eljumaður, sem hið
mikla verk hans, »Annáll 19. aldar«, ber vott um. Skáldskap-
ur hans virðist þó standa langt að baki skáldskap Árna.
Um séra Pétur er hinn alþekti »Passíusálmur« Kristjáns
fjallaskálds. •
Samgöngur milli lands og eyjar, um og eftir miðja öldina,
voru eingöngu skreiðarferðir, sem fyr er sagt. Upphaflega
1) Hann var hér prestur í 27 ár.