Eimreiðin


Eimreiðin - 01.10.1928, Page 83

Eimreiðin - 01.10.1928, Page 83
eimreiðin RÍKIÐ OQ BÆKURNAR 387 fánýtum hégóma, sem Sigurður Nordal hefur skrifað um »alþýðumenninguna« er það ekki ljóst, hvað alþýðumenning er. Helzt er svo að sjá, að einkenni henna.r sé »lífsblóð sjálfsmentunarinnar«, sem menn fá í sig án þess að fara í skóla, og að hún stefni að »manngildi«, »þar sem skólament- unin vill gera menn að steinum í vegg eða hjólum í vél«. En þetta er einber orðaleikur. Auðvitað stefnir öll sönn mentun að manngildi, og í insta eðli sínu er öll mentun sjálfsmentun. Skóli er einskonar samvinnustofnun til að afla sér sjálfs- mentunar. Eg veit ekki, hvernig mönnum verður það skyn- samlega Ijóst, að »bækur« og »skólar« séu einhverjar mismun- andi stefnur, eða^ andsfæð öfl í þjóðlífinu. Hvortiveggja þarf að fara saman. Islerizk skólamál eru að vísu á gelgjuskeiði, og skóla»framfarirnar« lenda stundum á gönuskeiði. En skóla- mentunin hefur vafalaust áorkað ýmsu til menningarauka og mannlifsbóta móts við það sem áður var. Það er fjarstæða að hugsa sér það, að þróun skólamentunarinnar verði heft úr því sem orðið er, og hégilja að halda, að fáeinar þýddar bækur á ári geti komið í stað hennar. Engar líkur hafa verið fyrir því færðar, að »alþýðumenningin« sé frjósamari jarðvegur fyrir bókaútgáfu en önnur menning. 1 þessum efnum fær Sigurður Nordal þvert á móti í fangið fullan straum reynslunnar frá undanförnum kynslóðum. Það er sem sé staðreynd, að nú er lesið miklu meira og upp og ofan fjölbreyttara °9 hollara efni en áður á öldum heimilismentunarinnar. Bækur °9 blöð eru nú meiri alþýðueign en á blómatímum alþýðu- menningarinnar. Þegar talað er um nauðsyn þess að auka og bæta íslenzkan bókakost, er það því óþarfur hégómi að miða slíkt við einhverja sérstaka menningartegund eða mannflokk. Almenna bókaútgáfu fámennrar þjóðar verður að miða við lestrarþörf og lestrarvilja allra mentamanna hennar, hvort sem njentun þeirra er kölluð »alþýðleg« eða »lærð«. íslenzku Plóðlífi er enginn greiði gerður með því, að menning þess sé- óregin sundur í dilka af »æstetiskri« fordild. . Það, hvernig bókakostur þjóðarinnar verði bættur og auk- inn, er hagsmunaatriði og framkvæmdamál. Það gildir eimJjlhversu ‘nngumjúkt er talað um huldar lindir í sálunni og lifsblóð siálfsmentunarinnar, það þokar málinu ekki fram um hænufet, Því það er viðskiftamál og reikningsdæmi um framleiðslu og fnarkaðsmöguleika. Þetta er einfalt og sjálfsagt, þótt einhverj- np kunni að þykja það óskáldlegt, eftir að málið hefur nær eingöngu verið rætt frá sjónarmiði þjóðarsálarinnar, lýð- ®ktarinnar og hinna heitu andlegu nautna. Þessu er samt ekki svo varið. Því auðvitað er ekki um að ræða viðskifta-
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112

x

Eimreiðin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.