Eimreiðin - 01.04.1937, Blaðsíða 58
178
SJÁLFSTÆÐI ÍSLANDS OG SAMBANDSLÖGIN eimreiðin
Sambandið er það, sem kallað er á milliríkjamáli »Personal-
union« (konungssamband, persónusamband), en ekki »Real-
union« (sem er málefnasamband af sjálfu sér). — Viður-
kenningin á fullveldi íslands óskoruðu, sem þá var fyrir
Islendinga mergurinn málsins, er hér fullkomin, — og til sann-
indamerkis um það tiltekur einmitt lagagreinin, að ísland
skuli standa í lieiti konungs, sem það ekki áður gerði, (og í
öllum íslenzkum lagaboðum er það nú sett á undan »Dan-
mörku«, eins og menn kannast við, o. s. frv.).
2.-5. gr. taka til um konungserfðir, er gildi áfram sem
verið hafa að lögum, nema samkomulag verði milli ríkjanna,
meðan sambandið helzt, um breytingu; svo og um trúarbrögð
konungs og lögræði fkonungur á að játa evangelisk-lúterska
trú eftir gömlum ákvæðum); einnig hvernig fara skuli, er
konungur sjálfur getur eigi annast sín stjórnarstörf. Svo og
að konungur geti eigi verið þjóðhöfðingi í öðrum löndum,
nema Ríkisþing Dana og Alþingi íslendinga samþykki. Loks
um greiðslu af ríkisfé til konungs.
Alt þetta leiðir af hinu, að konungur er sá sami lijá báð-
um og sama ættin (konungsætt) og verið hefur.
Að öðru leyti er sjálft konungs-fyrirkomulagið ekki inni-
falið í samningnum eða lögunum; þau byggja aðeins á því
ástandi, sem er, en segja t. d. ekkert um, hvernig hvort riki
um sig hegðaði sér í því efni, ef samningnum yrði sagl upp
eða því um líkt.
Þá koma (3. og 7. gr., sem eru einna merkastar, en um leið
að allra dórni varhugaverðastar allra ákvæða þessa sáttmála.
Hef ég nokkuð um þær talað opinberlega áður (þ. e. 1. dez-
fyrir 3—4 árum).
6'. gr. Þar er ákveðið, að danskir ríkisborgarar njóti að
öllu leyti sama réttar á Islandi sem íslenzkir borgarar, og
íslendingar í Danmörku sem danskir borgarar, (en hvorir um
sig eru undanþegnir herskyldu í hinu rikinu). Heimild til
fiskiveiða er pannig jöfn, rétiur skipa þjóðanna jafn, viðskifl1
með sömn kjörum, o. s. frv.
Meðan sáttmálinn gildir, verður þetta vafalaust þyrnir 1
augum margra manna hér á landi, að Danir, allmiklu stæri'1
þjóð og auðugri, njóti hér jafnréttis við oss, í voru eigin landi;