Eimreiðin - 01.10.1943, Side 82
354
HJÚPUR OG HULA
EIM REIÐIX
eyrum fólksins. Tíbrá aldanna bregður yfir þá hulu og lætur
þá ljóma í hillingu.
Enga mannveru hillir lil jafns við höfund kristins dóms.
Nítján aldir hafa ofið úr ljósvakanum hjúp handa honum, sem
eigi verður unninn í verksmiðjum tækninnar.
Sumir unnendur og vildarvinir kristindómsins harma það,
að kenning Meistarans er eigi til í handriti hans sjálfs. Þá
hefði verið að vísu að ganga um kjarna málsins.
Það er nú svo!
Ég held, að langlífi kristindómsins stafi að sumu leyti af
þvi, að uin sanngildi hans hefur verið deilt. Hvert það málefni,
sem hefur fengið afgreiðslu, er þar með fallið úr fatinu og
dáið drottni sínum. Hulan, sem hjúpar kenningu Krists, heldur
vakandi trúnni og skilningnum, sein leita úrlausnar á leyndar-
dómum lífs og dauða. Ef til vill hefur höfundur kristindóms-
ins talið honum bezt borgið með þvi að velja honum í upphafi
leið lífrænnar málsnilldar. Carlyle — einn sá málsnjallasti
maður, sem uppi hefur verið — segir (ef ég man rétt), að op-
inberun guðs hafi komið til mannanna á ýmsar lundir. Hann
nefnir tónlist meistaranna á hljómlistarsviðinu. Hann nefnir
ljóðskáld og' leikara, málarameistara og trúarbragðafröinuði,
sem hafið hafa og hefja mannsandann til hæða frá lágsléttu
lífsins. Allir þessir menn nota hjúp og hulu, þ. e. a. s. aðdáun
sú, sem þeir verða aðnjótandi, fæst ineð því móti, að mennina,
sem list þeirra hrífur, dreymir hálfl í hvoru dýrðina, sein
þeim er boðin. „Með sjónunum opnum mig dreymdi" inn 1
hulins heima.
Hitt er svo annað mál, að listamenn láta það ógert að opin-
bera guðs vilja — nema sá aleini listamaður, sem er höfundm
kristindómsins. Hann var skáld, svo að eigi verður véfengt-
Líkingar hans og dæmisögur eru skáldskapur snilldarlegui',
gerður í háleitum tilgangi. Og allar eru þær klæddar líkinga-
hjúpi — eru táknrænar. Svigrúm þeirra er veröldin öll.
þess vegna ganga þær aldrei úr gildi. Þær eru fæddar í brjosu
ma'nnvinar, sem vill koma i veg fyrir niðurlægingu mannanna
og vill allt til vinna að bjarga á þurrt land skipbrotsmönnum>
sem lenda á flæðiskeri. Hann er þess um kominn að hasta a
brotsjóa, þagga niður í stormi, sem lætur mikið yfir sér.