Eimreiðin - 01.07.1948, Síða 26
186
GYÐINGAR, ARABAR OG PALESTÍNA
EIMREIÐIN
þó að íbúum þessara landa fjölgi heldur seint, fólkið verður
•skammlíft, og ungbarnadauðinn er ótrúlega mikill. Engin
lireyfing, sem lieitið getur, hefur myndazt í þessum löndum, til
að breyta þessu ástandi. Fólkið í sveitum þessara landa er jafn-
sljótt og veit jafn lítið um sína eigin eymd eins og það vissi fyrir
átta öldum. Á Arabíuskaganum er ástandið svipað og í Egypta-
landi og Irak, að minnsta kosti meðal hinna búföstu bænda
•og borgarbúa.
Öðru máli er að gegna um syni eyðimerkurinnar, Bedúínana,
sem reika sem liirðingjar milli gróðurblettanna á sandauðniiini
á Arabíuskaganum og á heiðum Transjórdaníu. Þrátt fyrir fátækt
og ógnharða lífsbaráttu eru þeir enn í dag harðfengir og herskáir,
enda hafa þeir myndað kjarnann í herjum Ibn Sauds og Abdullah
Transjórdaníukonungs. Hinir arabisku íbúar Palestínu lifðu frain
að 1917 sams konar lífi og fólkið í öðrum arabiskum löndum. En
landnám Gyðinga hefur bylt þar öllu um. Með því að koma upp
vatnsveitukerfi og áveitum gátu Gyðingar breytt stórum liluta af
landinu í frjósamt aldinræktar- og akuryrkjusvæði, er hafði út-
flutning á appelsínum og öðrum ávöxtum í stórum stíl. Gyðingar
kunnu alla tækni Vesturlanda, og hið aldagamla búhokur
Múhameðstrúarmanna fór algerlega lialloka fyrir hinum vestrænu
vinnuaðferðum Gyðinga. Það er einmitt þetta, sem liefur komið
dálítilli ólgu af stað í hinum arabiska lieimi, meðal liástéttanna
reyndar. Þær óttast nefnilega, að komi upp vestrænt menningar-
ríki í Palestínu, þá geti yfirráðum þeirra orðið hætt í þeirra
eigin löndum, ef svo kynni að fara, að hinn trúaði og kúgaði
lýður í liinum arabisku löndum vaknaði af aldagömlum svefni
og gerði tilraunir til að bæta kjör sín. Hreyfing arabisku ríkjanna
á móti Gyðingum Palestínu er því ekki bara af trúarlegum
ástæðum og þjóðernislegum, heldur einnig stéttarlegum og þjóð-
ernislegum.
Ein liöfuðmótbára Araba á móti Gyðingum er sú, að Gyðingar
séu trúarflokkur og ekki þjóð. Það er þess vert að atliuga þetta
mál nánar. Hitler hélt því fram, að Gyðingar væru sérstakur
mannflokkur, en það tekur enginn alvarlega nú. Hitt er ef til
vill hægt að deila um, hvort Gyðingar séu trúflokkur eða þjóð.
Þegar Rómverjar sundruðu byggð Gyðinga í Palestínu, á 1., 2. og
3. öld eftir Krisls fæðingu, og tvístruðu Gyðingum í allar áttir,