Eimreiðin - 01.10.1952, Blaðsíða 63
EIMREIÐIN
MANNASKIPTI
279
'— Ég veit ekkert, hvaS þú ert að tala um, sagði hann. — Það
hefur enginn verið rekinn. Það hafa bara orðið mannaskipti.
Jæja, já, sagði ég. — Hvernig þá mannaskipti?
-— Einu sinni sat hún Lilja á þessum stól. Þá bjó ég í snot-
Urri íbúð inni í Kleppsholti. Nú situr hún inni í Kleppsholti,
en eg á þessum stól. Eru það kannske ekki mannaskipti? Ég
gat ekki neitað því. Og svo fékk ég smám saman söguna. Auð-
vitað var sagan miklu lengri í munni vinar míns og flutt með
viðeigandi athugasemdum og innskotum, og birti ég því aðeins
útdrátt úr henni.
I fyrstu vímu hjónabandssælunnar og í meðvitundinni um að
hafa frelsað fallna sál hafi hann, sagði Hermann, svo að segja
!agt líf sitt fyrir fætur hennar. Hún átti að vera drottning lífs
hans upp frá því og hann hennar auðmjúki þjónn. Rökrétt af-
leiðing af því varð, að hann gaf sig henni á vald upp á von og
úvon. Hún skyldi lifa eins og blómi í eggi. Nú hefði allt farið
Veh ef hún hefði ekki tekið valdaafsal lians allt of bókstaflega.
Éhn fór að hafa sína hentisemi á öllu, og henni var svo undar-
^ega farið, að hentisemi hennar kom alltaf þvert á hans gömlu
°g góðu venjur. Þegar mánuður var liðinn, tók hann eftir, að
hun hafði aldrei sópað bak við skrifborðið hans. Fötin hans, sem
larin hafði alltaf sjálfur sótt í þvott í tæka tíð, voru nú aldrei
Pvegm fyrr en alR Var komið í ótíma og aldrei meira í einu
en hann þurfti að nota í það og það skiptið, svo að lengst af
gekk hann í óhreinu. Hann, sem alltaf hafði verið reglumaður
1 ^iataræði, bæði að upplagi og eins vegna magans, gerði allt i
eniu þá hræðilegu uppgötvun, að eiginlega hefði hún borið hon-
11111 matinn á flestum öðrum tímum sólarhringsins en hinum
leglulegu matmálstímum. Og einhvern veginn datt hún alltaf
e^an á að matreiða þá rétti, sem hann sjálfur forðaðist, þegar
lfinn hafði mátt ráða. Þetta allt uppgötvaði hann fyrst smátt
eg smátt, eftir því sem ástarblindan smágreiddist frá augum
hans.
~~ Ef það er ekki annað en þetta, þá ættirðu að ógilda valda-
'Sa þitt, sem þú hefur auðsjáanlega gert í augnabliks geð-
ruflun, og taka aftur öll mál í þínar liendur.
^inur minn var ekki á því. Það var nefnilega ekki allt upp
talið. Vinir hennar og kunningjar höfðu farið að koma aftur að