Eimreiðin


Eimreiðin - 01.10.1952, Blaðsíða 68

Eimreiðin - 01.10.1952, Blaðsíða 68
284 MÁTTUR MANNSANDANS eimreiðin okkar, ekki síður en sálin, að vera heill og hraustur. 1 vökunni á daginn lifum við á sífelldu þani, svo að duldar óskir okkar og vonir víkja fyrir áreynslu vinnunnar. Því öll berum við í brjósti meira og minna duldar og ljósar óskir um eitthvað, sem við þráum og vildum mega iðka fremur en það, sem við verðum að gera og nefnd eru dagleg skyldustörf. fmyndunaraflið er hæli lífsins frá hörðum staðreyndum hvers- dagsleikans. Maður fer í leikhús og svífur þar á vængjum ímyndunar, en gleymir köldum veruleikanum, eða les ævintýra- sögur, eins og Þúsund og eina nótt, unz hann gleymir veruleika líðandi stundar. Þetta og því um likt er stundum kallað að láta ímyndunaraflið hlaupa með sig í gönur. Þó að líkaminn í svefni lokist að nokkru leyti fyrir ytri áhrif- um, þá eru þau þó ekki með öllu afmáð. Utanaðkomandi hljóS, ljósfyrirbrigði og líkamleg fyrirbrigði önnur geta haft beinlínis áhrif á draumlífið. Þessi utanaðkomandi áhrif eru stundum orsök að efni og innihaldi drauma okkar í svefni. Mikill hávaði eða snöggt leiftur getur verkað þannig á sofandi mann. Ég nefm sem dæmi sjúkan hermann á spítala, sem hrökk upp í ofboði eina nóttina við, að glampi frá lampa, sem hjúkrunarkona vat með í höndunum, féll af tilviljun á andlit honum. Hann hafði dreymt, að hann yrði fyrir sprengikúlu, og glampinn var or- sökin til draumsins. Krauss telur, að milt, stöðugt ljós geti valdið draumi, og hann segir frá því, að sig hafi dreymt unaðsfagra konu og breitt út faðminn til þess að taka hana í arma sér, er hann hrökk upp og komst að raun um, að draumsýnin var ekki annað en mildur geisli mánans, sem skein framan í hann mn um glugga herbergis þess, sem hann svaf í. Hljóðverkanir geta einnig haft sín áhrif á efni drarnna, þó að þau áhrif birtist aítíð myndrænt í draumnum. f draumi fara sjaldnast töluð orð á milli dreymanda og draun1' gjafa, en dreymandinn kann að hafa óljósa endurminningu uirl það, þegar hann vaknar, að einhver hafi talað til sín, en hvað sagt var eða hver talaði, á hann venjulega erfitt með að muna- Draumar, sem vekja ugg og kviða, geta einnig oft haft sínar eðlilegu, líkamlegu orsakir. Mann nokkurn dreymdi, að honum væri fengin stór hrúga af peningum, sem hann ætti að raða upp í tvær jafnháar súlur. En honum gekk verkið illa og gat
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Eimreiðin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.