Eimreiðin


Eimreiðin - 01.10.1952, Blaðsíða 80

Eimreiðin - 01.10.1952, Blaðsíða 80
296 RITSJÁ EIMREIÐIN Bókin er kærkomið lestrarefni fróðleiksfúsum börnum og auk þess falleg í útliti. Sveinn Bergsveinsson. Látbragðsuppruni tungumála. Alexander Jóhannesson: GESTUR- AL ORIGIN OF LANGUAGE. H.f. Leiftur, Reykjavík 1952. Uppruni tungumála hefur löngum verið freistandi viðfangsefni mál- fræðingum, og hafa ýmsar kenningar komið fram. Prófessor Alexander Jó- hannesson hefur nú um árabil feng- izt við rannsóknir á þessu efni við samanburð hinna fjarskyldustu tungu- mála og skrifað um það bækur og ritgerðir í erlend tímarit. Gestural Origin of Language er samanburður á sex málaflokkum, sem ekki eru taldir skyldir i venjulegri merkingu þess orðs. Þar eru indógermanskar rætur bornar saman við hebresku, kínversku, pólynesisku, tyrknesku og grænlenzku. Þá eru þar einnig dæmi úr súmerísku og lappnesku. Hér verð- ur þvi ekki rakið eftir venjulegum lögmálum hljóða, heldur athuguð tíðni orðmynda eftir talfærastöðu. Þar sem fornfræðingar telja, að maðurinn hafi verið til hundruðum árþúsunda áður en hann fann upp á því að klappa orðtákn á stein, virðist gátan um uppruna tungnanna næsta torráðin. Alexander telur, að þróunin á forsögulegum tima hafi gengið ákaflega hægt, það er ekki fyrr en menn tóku upp akurrækt fyrir svo sem 8000 árum, að tungan fer að auðgast að orðum, eins og tungumál- in bera með sér, og er þó ærið langt bil að brúa. Höfundurinn skiptir orðaforða mannlegs máls í fjóra höfuðflokka eftir merkingu: 1. upphrópanir og kenndaorð, 2. hermiorð, 3. látbrigða- orð og 4. sérgildi eða abstrakta, þ. e. orð breyttrar merkingar. Flestir eru sammála um tvo fyrstu flokkana, enda er fjöldi þeirra litill. Um 3. flokkinn er svo fjallað í þessari bók. Höfundurinn gengur út frá ýmsum látbrigðum, þó einkum handahreyf ingum, er frummaðurinn hafi í önd- verðu gert sig skiljanlegan á. Hér gæti maður að sjálfsögðu strax orðið höf. ósammála, en kenning hans verð- ur þó eigi að heldur afsönnuð. Af látbrigðunum þróaðist siðar talað mál, og líkti þá maðurinn ósjálfrátt eftir hreyfingunum með talfærum sinum. Auðveldast var að sýna lögun hluta, eins og t. d. að eitthvað væri beint eða bogið. Einkum hefur höfundur- inn safnað mörgum dæmum orða, þar sem talhreyfingin færist fram, þar sem fyrsta hljóðið er baktungu- hljóð, en siðan sérhljóð og siðast var- mælt hljóð í einni samstöfu. Tal- hreyfingu þessari líkir höf. við bog- hreyfingu handanna, en tákni svo að éta, halda einhverju föstu milli tanna sér eða í munni, loka, þjappa saman, fullgera og ljúka við. Heildarniður- stöðurnar eru þær, að um 50—60 af hundraði allra athugaðra orða og orðróta í sex málaflokkum eru sam- hljóða að merkingu í samræmi við áðurnefnda talhreyfingu. 1 einstök- um málum er þó samræmið meira. Höfundurinn bendir á, að hér geti ekki verið um tilviljun eina að ræða. Hér er vissulega mjög merkilegt rannsóknarefni og væri fróðlegt, ef fleiii hljóðsambönd og hljóðhreyfing' ar væru athuguð. Höfundurinn rannsakar lika gúd1 l og r, en þau hafa verið kölluð lm hljóð og eru að mörgu leyti alveg
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Eimreiðin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.