Eimreiðin - 01.01.1953, Blaðsíða 24
12
KALDA STRlÐIÐ OG ISLENZK MENNING
EIMREIÐIN
menningu Ameríku og Evrópu. Oftast er samanburðurinn
þannig, að hámenning Evrópu er borin saman við lágmenn-
ingu Ameríku, og þá er ekki von á góðu fyrir þá síðarnefndu.
Venjulega dæma einnig þeir Evrópumenn Ameríku harðast,
sem lítið hafa kynnzt henni af eigin sjón og reynd. Að sjálf-
sögðu er mörgu ábótavant hjá henni, en það gegnir sama
máli með Evrópu og allar aðrar heimsálfur, þjóðir og lönd
á hnettinum. Víða er pottur brotinn, er gamalt og satt orðtak.
Amerísk menning er til orðin úr enskri fríkirkjuhreyfingu
frá 17. og 18. öld og fransk-enskri skynsemistrúarhreyfingu
frá 18. öld. Þessar tvær hreyfingar hafa þar runnið saman
á þá lund, að í Ameríku er almennast, að menn trúi bæði
á guð og skynsemina, en í Evrópu á guð eða skynsemina.
Skynsemin og trúin áttu þar þannig samleið, að kirkjan varð
mikilvægur aðili í frelsisbaráttu Ameríkumanna og ekki háð
ríkinu á neitt svipaðan hátt og í Evrópu, enda fríkirkja. Þó
að íslenzka kirkjan sé ríkiskii’kja, mundi ekki fjarri lagi að
telja hana skyldari amerískri kirkjuhreyfingu en evrópskri,
svo sem að því er snertir frjálsræði í hugsun og rannsóknar-
þrá.
Annað einkenni á amerískri menningu er það, hve margir
þar í landi hafa hafið sig upp úr fátækt með þrotlausri vinnu
og orðið stórefnaðir menn. Margir þessara manna eru komnir
frá Evrópu bláfátækir, en hafa orðið þar ríkir. I Ameríku hefur
ekki setið að krásunum neinn iðjulaus aðall eins og í Evrópu.
Fyrirlitning á vinnunni hefur aldrei verið þar stéttareinkenni.
Ameríka hefur aldrei getað státað af að hafa átt kónga og
keisara, eins og Evrópa. Háaðall, með sérstök réttindi um-
fram alla aðra, hefur aldrei verið þar til. Ef um nokkurn
slíkan aðal væri þar að ræða, þá væru það helzt þeir, sem
hafa brotizt þar áfram upp úr fátækt og orðið auðugir og
valdamiklir menn. Þeir geta leyft sér að lifa eins og greifar
Evrópu gerðu fyrrum, í „vellystingum praktuglega", og gera
það sumir. En virðingin fyrir vinnunni er þjóðareinkenni
Ameríkumanna.
f þriðja lagi hefur fjöldaframleiðslan mótað lífið í Ameríku
sérstökum svip. Stóriðjuhöldar hafa, með menn eins og Henry
Ford í fararbroddi, uppgötvað möguleikana til að framleiða