Eimreiðin - 01.01.1958, Blaðsíða 44
20
EIMREIÐIN
að segja: „Jafnaðu um hann, Hemingway. Jafnaðu um hann“.“
Meðan stóð á Parísardvölinni neitaði Hemingway oft góðum
boðum um blaðamennskustörf og bjó beldur við þröngan
kost til að geta skrifað eins og honum sýndist.
Það hefur stundum sézt glytta í íþróttamanninn gegnum
rithöfundinn Hemingway. Hann hefur talað um að vera sig-
urvegari (champion) og þótt hann væri sleginn í gólfið af ein-
hverjum aðvífandi garpi, fyndist honum það ekki umtals-
vert, enda væri það barsmíð, sem sigurvegarar vrðu að þola.
Og það má til sanns vegar færa, að Hemingway hefur verið
sigurvegari á ritvellinum, þótt hann hafi legið í gólfinu endr-
um og eins. Einkalíf hans hefur verið átakamikið, engu síð-
ur en hið opinbera líf. Hann er fjórgiftur, en þrjár fyrstu
konur hans voru allar frá St. Louis. Hann skildi við fyrstu
konu sína árið 1927. Faðir hans dó fyrir eigin hendi árið
eftir. Sama ár og hann skildi við fyrstu konu sína, giftist
hann Pauline Pfeiffer, blaðakonu við Vogue, og þrettán ár-
um síðar var hann skilinn við hana og giftur Mörthu Gell-
horn, rithöfundi. Hann er nú giftur Mary Welsh. Heming-
way á þrjá syni, einn með fyrstu konu sinni og tvo með
Pfeiffer. Enginn þeirra, en tveir eru búsettir í Afríku, hafa
fetað í fótspor föður síns, hvað skáldskapinn snertir. Einn
þeirra hefur sagt, að hann hafi aldrei skrifað staf um ævina,
utan nafn sitt á víxla, og geta það verið þýðingarmikil skrif,
engu síður en önnur. Dauði föður hans hafði mikil áhrif á
Hemingway. Þeir höfðu verið mjög samrýmdir, en faðir hans
var læknir í Oak Park í Illinois. Hafa ritskýrendur látið ligg'ja
að því, að fyrirmyndin að bókarlokum í Vopnin kvödd sé
sótt til dauða föður hans. Foreldrar Hemingways voru mikils-
virtir. Seinna undruðust nágrannarnir „hvernig drengur, al-
inn upp í guðstrú og góðum siðum, gæti ritað svo vel um
djöfulinn og undirheimana," eins og einn þeirra orðaði þa<5,
eftir að Hemingway var orðinn frægur.
Hemingway hefur verið fundið ýmislegt til foráttu sem rit-
höfundi. William Faulkner, skáldbróðir hans og landi, hefur
sagt, að hann hefði litla hetjulund; hann hefði aldrei haett
sér út á hálan ís og aldrei notað orð, sem hefðu orðið til þeSS;
að lesandinn þrifi til orðabókar til að sjá, hvort það vaeri