Eimreiðin - 01.01.1958, Side 60
36
EIMREIÐIN
ótrúlega skömmum tíma að heimta frelsi sitt úr höndum er-
lendra valdhafa, blása nýju lífi í allan andlegan gróður og
auka fegurð hans og fjölbreytni, efla margvíslegar framfarir á
sviði fræðslu- félags- og atvinnumála og bæta hag sinn svo
mjög, að hún á nú við að búa betri og hollustusamlegri kjör
en flestar aðrar þjóðir heims.
Það mundi því með öllu óhagganleg staðreynd, að þó að
menningarlíf þjóðarinnar hafi aukizt mjög að fjölbreytni, þá
mundu bókmenntimar, með sínum órofa tengslum við tungu
þjóðarinnar, sögu hennar, hugsunarhátt, mótun og lífsstríð á
liðnum öldum, jafnt blóma sem nauða, vera enn sem fyrr
höfuðgrundvöllur íslenzkrar menningar. Menn verða að gera
sér grein fyrir því, að eigi íslenzka þjóðin ekki að verða ófleyg>
deyja út eins og geirfuglinn, heldur skuli að því stefnt, að
hún haldi áfram að vera til og blómgast sem sérstæð og sjálf-
stæð menningarþjóð, þá verður hver einasti þjóðfélagsein-
staklingur á árum þroska og mótunar og komast í sem allra
nánust kynni við íslenzkar bókmenntir að fornu og nýju.
2.
Nauðsyn sem allra virkastra aðgerða á þessum vettvangi er
mjög bráð og brýn. ísland er orðið stilla í elfi, er skilur tvö
höfuðveldi veraldar á sviði stjórnmálalegra, félagslegra og
menningarlegra áhrifa. Með margvíslegri og meira og minna
markvísri áróðursstarfsemi er beinlínis reynt að villa um heil-
brigða skynsemi og dómgreind alls þorra manna, og vitan-
lega er hinum ungu og óráðnu hættast í gjörningaþoku áróð-
ursins. Framboð erlendra glæpasagna og sorpblaða, sem ein-
göngu miðast við gróðasjónarmið samvizkulausra seljenda, fer
sívaxandi, útgáfa lélegra skrílbókmennta á óvönduðu xnah
færist í vöxt, miðuð við það, að „nú selst á þúsundir þetta,
sem fyrr var þrjátíu peninga virði“, fjölmörg sakamála-, kláin-
og sorprit koma hér út á vegum aumra mammonsþræla, léleg-
ir erlendir og innlendir danslagatextar, miðaðir við hinaý
neðri tilfinningastöðvar líkamans, virðast vera vel á vegi með
að útrýma hneigð unga fólksins til fagurra ljóða, og glæpa'
kvikmyndir og skrípasamkomur, sem til er stofnað ýmist a
vegum mammons eða í nafni höfuðforystumanna þjóðarinn-