Eimreiðin


Eimreiðin - 01.09.1967, Side 15

Eimreiðin - 01.09.1967, Side 15
SIR WILLIAM CRAIGIE 195 á norsku. Það mun hafa verið á námsárum Craigies í St. Andrews, en í Oxford hélt hann áfram námi í þeim málum, þó að hann yrði enn sem fyrr að lesa þau tilsagnarlaust, því að kennsla í þeim féll niður 1889, er Guðbrandur Vigfússon andaðist, og var heilsa lians biluð, er Craigie kom til Oxford. í keltneskum málum sótti Craigie háskólafyrirlestra eftir að hann kom til Oxford. Kennarar iiarts og vinir voru hræddir um, að hann hefði of mörg járn í eldinum, en sá ótti reyndist ástæðulaus, þegar hann iauk með fyrstu einkunn báðum hinum tilskildu háskólaprófum, prófi í grísku og latínu ásamt bókmenntum Grikkja og Rómverja 1890 og prófi í sögu og heimspeki 1892. Að loknum háskólaprófum hlaut Craigie fjárstyrk til að halda áfram námi í Norðurlandamálum. Fór hann í þeim erindum til Kaupmannahafnar og dvaldi þar veturinn 1892—1893. Þetta var fyrsta ferð hans til útlanda. í Kaupmannahöfn umgekkst hann íslendinga og lærði íslenzku til hlítar, en hana kvaðst hann eink- um hafa numið af Jóni Stefánssyni, sem hann bjó hjá, Valtý Guð- mundssyni, Þorsteini Erlingssyni og Finni Jónssyni. Craigie las handrit í konunglega bókasafninu og Árnasafni. Þá skrifaði hann upp Skotlandsrímur, sem hann gaf út síðar, eins og brátt mun sagt verða, en kynni hans af rímum hófust, er Þorsteinn Erlings- son gaf honum Svoldarrímur Sigurðar Breiðfjörðs. Eftir heimkom- una frá Danmörku var hann skipaður aðstoðarmaður prófessorsins í latínu við háskólann í St. Andrews, og hélt Craigie því embætti í fjögur ár. Árið 1897 kvæntist hann stúlku að nafni Jessie K. Hutchen, sem var skozk að þjóðerni og frá Dundee eins og hann sjálfur. Hún var rithöfundur. Þau höfðu áformað brúðkaupsferð til Danmerk- ur og voru í þann veginn að leggja af stað, þegar honum bauðst starf við hina miklu ensku orðabók, sem kennd er við Oxford. Hann tók því boði, og varð ekki af utanlandsferð að sinni. Hann varð einn af aðalritstjórum orðabókarinnar 1901 og var í aðalrit- stjórn hennar þar til orðabókinni var lokið 1928. Sama ár, 28. júní, var hann vígður Knight Baclielor (riddari), en þeirri tign fylgir titillinn Sir, sem jafnan er hafður á undan skírnarnafni, eins og titill íslenzkra presta síra eða séra. Árið 1905 var Craigie skipaður lektor í Norðurlandamálum við Taylorian Institute í Oxford, en þar höfðu þau ekki verið kennd síðan Guðbrandur Vigfússon andaðist. Við sömu stofnun var

x

Eimreiðin

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.