Eimreiðin - 01.09.1967, Síða 22
202
EIMREWIN
Fannst Snæbirni jafnvel nóg um lofið, sem Craigie bar á þá félaga
og fólkið á Stað. „En greinin sýndi, að þarna áttum við vin, sem
þagði ekki við álasi um okkur,“ segir Snæbjörn í ævisögu sinní.
í þriðja skipti kom Craigie til íslands á Alþingishátíðina 1930
og var kona hans með honum.
Að maklegleikum sýndu íslendingar honum sóma á ýmsan hátt.
Hann var heiðursfélagi Bókmenntafélagsins. Sæmdur var hann
riddarakrossi fálkaorðunnar 1924 og Háskóli íslands kjöri hann
heiðursdoktor 1946. Þó að um framtak einstaks manns væri að
ræða, skal þess getið, að Snæbjörn Jónsson gaf út Númarímur
1937, með þannig orðaðri tileinkun til Craigies, að útgáfan væri
gerð í því skyni, að hún væri kveðja frá Islandi á sjötugsafmæli
lians. Sigurður Nordal reit formála og Sveinbjörn Sigurjónsson
inngang að útgáfunni. Árið 1947 gáfu Landsbókasafn íslands og
Isafoldarprensmiðja út Olgeirsrímur Guðmundar Bergþórssonar.
Alþingi veitti fé til útgáfunnar og var hún tileinkuð Craigie á
áttræðisafmæli hans. Finnur Sigmundsson, þá landsbókavörður, og
sá, er þetta ritar, bjuggu hana undir prentun. Að hvötum Craigies
og fyrir forgöngu Snæbjarnar Jónssonar var Rímnafélagið stofnað
1947.
í fjórða og síðasta skipti kom Craigie til íslands 1948. Kom
hann þá í boði Rímnafélagsins, en nokkrir menn munu hafa styrkt
félagið til heimboðsins. Nú var hann einn á ferð, kona hans and-
aðist 10. febrúar 1947. Þetta var síðasta ferð hans til útlanda.
í þessari ferð var honum sýndur mikill sómi bæði af opinber-
um aðilum og einstökum vinum hans. Háskólinn hafði boð inni
honum til heiðurs 29. júní, og voru prófessorarnir Sigurður Nor-
dal og Ásmundur Guðmundsson aðalræðumenn. Kjartan Ólafsson
skemmti með kveðskap, kvað meðal annars vísur eftir heiðursgest-
inn sjálfan, kveðju í ljóðum til hans frá Kolbeini Högnasyni og
síðast eftir ósk heiðursgestsins kafla úr Hjálmarskviðu Sigurðar
Bjarnasonar. Craigie fór í boði ríkisstjórnarinnar til Norðurlands
og ferðaðist um allan þann landsfjórðung, en þangað hafði hann
ekki komið fyrr. í boði Háskólans fór hann upp í Borgarfjörð. Að
kvöldi 12. júlí hélt Rímnafélagið honum samsæti í Tjarnarcafé.
Því stjórnaði dr. Björn Þórðarson og setti það með snjallri ræðu.
Meðal ræðumanna var Lúðvík Kristjánsson, þá ritari Rímnafélags-
ins, sem færði heiðursgestinum Árbækur Espólíns að gjöf frá félag-
inu. Fluttar voru heiðursgestinum kveðjur í ljóðum frá Kolbeini