Eimreiðin - 01.09.1967, Page 23
SIR WILLIÁM CRAIGIE
203
Högnasyni, Pétri Jakobssyni og Sveinbirni Beinteinssyni, og kvað
Kjartan Ólafsson þær allar. Craigie þakkaði með ræðu, sem fjall-
aði aðallega um tvö nrál, hversu nauðsynlegt það væri að sjá nem-
endum, sem leggja stund á íslenzku við erlenda háskóla, fyrir
ódýru lesefni og svo um nauðsyn á orðasöfnun úr rímum.
Craigie flutti fyrir Rímnafélagið fyrirlestur um rímur í Háskól-
anum 30. júní. Þann fyrirlestur lét félagið prenta (Aukarit Rímna-
félagsins I), og aftan við hann er prentuð kveðja frá Craigie til
íslenzku þjóðarinnar, sem hann talaði inn á plötu síðasta daginn,
sem hann var á íslandi, og að sjálfsögðu var útvarpað.
í blaðinu Akranesi 1948, bls. 78—80, er ítarlega sagt frá dvöl
Craigies hér á landi að þessu sinni og móttökum öllum, sem hon-
um voru veittar.
Hann andaðist níræður að aldri 2. september 1957.
Þjóðbókasafnið í Edinborg efndi til mikillar sýningar á aldar-
afmæli hans.