Eimreiðin


Eimreiðin - 01.09.1967, Page 28

Eimreiðin - 01.09.1967, Page 28
208 EIMREWIS varp. Ertu vitlaus. Hvað lield- urðu hann sé? Það er satt, andvarpaði kon- an. Þung augnalok hnigu undir næturstöðnum smyrslum. Hún var sú kona, sem ætlaði á dans- leik, en komst ekki á dansleik, vegna Jress að hún var svikin. En vonbrigðin höfðu gert hana skapdaufa, höfðu drepið ljóm- ann í augum hennar, höfðu auk- ið matarlyst hennar óhemjulega. Hún bruddi sykur af áfergju, Jregar hún drakk ekki kaffi, þá bruddi hún sykurinn lostuglega eins og hún væri að meðtaka einu lausnina frá böli heimsins, svar við Jreirri auðmjúku bæn til guðanna, að henni fengi að líða vel svo sem öðru hvoru, að hún þyrfti ekki að Jjjást hvert einasta augnablik ævi sinnar. Hún sagði: í gærkvöldi ætlaði hann með mig á ball. Hver? Nú hann! Hver helduðru það hafi verið? Einhver sjarmör, ha? Einhver voldugur sjarmör, sem á bíl og hús og eyðir peningum á fólk eins og mig. Mikið spyrðu oft vitlaust, Guðríður. Og fór hann ekki með þig? Konan dæsti og hampaði barninu í skauti sínu: Æ það J^ýðir ekkert að tala við þig, góða mín. Ég er að fara, tilkynnti stúlk- an, mjóir fótleggir hennar voru strengdir undir buxunum og hún var komin í gráa kápu af systur sinni; lnafnsvart hár henn- ar lá í gisnum lokkum niður á kragann og andlit hennar brann af kynlegum æsing. Hún gekk ekki, hún dansaði eftir gólfinu, fas hennar var sótthitakennt og hún var ringluð, hún vissi ekki, hvort hún ætti að Jajóta út strax eða kveðja systir sína fyrst. Farðu, sagði konan. En farðu ekki uppeftir. Það er Jrað versta, sem maður getur gert á sunnu- degi. Ef löggan nær Jrér á sunnu- degi, þá ertu búin. Hún skrifar Jrig á lista og þá ertu eftirlýst manneskja. Skilirðu það, Guð- ríður mín. Þetta eru nefnilega pestarliundar. Ég doooobla þá, sagði stúlkan og litaðar varir hennar bærðust í hreyknu brosi: Ég doooobla þá eins og að drekka blávatn. Þetta eru djöflar í mannsmynd. Þeir hlífa engu kvikindi, láttu mig vita það. Þeir eru verstir við stelpur, sem fara uppeftir á sunnudögum. Veiztu hvað þeir kalla þær? Þeir sitja þrír inni í lögguskúrnum og spyrja og spyrja, og veiztu hvað þeir segja við mann? Þessir andstyggilegu pestarhundar, ég hata þá, ég gæti klórað úr þeim augun, þegar ég hugsa um Jrað. Og þeir sælast til að Jrukla á manni og segja að maður sé með sígarettur inn á sér. Viskípela undir blússunni eða eitthvað þvíumlíkt. Þeir eru

x

Eimreiðin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.