Eimreiðin


Eimreiðin - 01.09.1967, Page 40

Eimreiðin - 01.09.1967, Page 40
220 EIMREIÐIN Og hugur minn þráir vini, sem vísum og sögum unna, og væran, draumljúfan svefn, þegar skipi er ráðið til hlunna. Annað víðfrægt kvæði Mase- iields er „The West Wind“, sem Sigurður J. Jóhannesson þýddi, og prentað er í úrvali kvæða hans, Ljóðum, sem Steingrímur Arason bjó til prentunar og út kom á vegum Barnablaðsins Æskunnar 1950. Þýðingin, sem nefnist „Vestanblærinn", er, eins og aðrar þýðingar Sigurðar og frumort kvæði, lipur og létt, á áferðarfallegu íslenzku máli, og nær ylirleitt vel efni og anda frumkvæðisins, þó að bragarhátt- urinn sé annar. Kvæðið er of langt til þess að taka upp þýð- inguna í heild, en nýtur sín því aðeins til fulls, að það sé lesið í heild sinni. Vera má, að til séu aðrar ís- lenzkar þýðingar af ofannefnd- um kvæðum Masefields, en eigi hef ég fundið þær í ljóðabókum þeim eða þýðingasöfnum, sem ég hef við hendina. Kem ég þá að því, sem ég vildi sérstaklega minna á með þessari grein minni um Mase- field, en jrað eru tengsl hans við íslenzkar fornbókmenntir. Hann fann þar viðfangsefni tveggja rita sinna, og fæ ég eigi gert þeirri hliðinni á skáldskap hans betur skil en með því að taka upp að miklu leyti kaflann um það efni úr ritgerð minni „ís- lenzk fornrit og enskar bók- menntir" (Timarit Þjóðrœknis- félags Islendmga í Vesturheimi 1934, bls. 74-75). í eitt leikrita sinna, The Lock- ed Chest (Lokaða kistan), 1906, liefur Masefield sótt efniviðinn í Laxdcela sögu, aðallega í 14. og 15. kapítula hennar. En í þeim köflum segir frá viðskipt- um þeirra Ingjalds Suðureyja- goða og Þórðar godda út af Þórólfi þeim, er vegið hafði Halla bróður Ingjalds. — Mase- field fylgir í aðalatriðunum frá- sögn Laxdælu, en hefur jafn- framt aukið við efnið, fyllt í eyðurnar. Sagan getur þess t. d. eigi með einu orði, að Vigdís hafi bjargað Þórólfi úr klóm Ingjalds og fylgdarmanna hans, með því að loka hann niður í fatakistu þá hina miklu, sem leikritið dregur nafn af. Laxdæla nefnir það að vísu, að Vigdís hafi sagt skilið við Þórð godda (16. kapítuli), en hvergi segir þar frá því, að hún hafi á brott hlaupið með Þórólfi, en á því endar leikritið. Þó að The Locked Cliest jafn- ist eigi á við beztu leikrit Mase- fields að áhrifamagni eða list- fengi, er þar vel með efni farið. Frásögnin er blátt áfram, laus við alla litúrdúra, með undir- straum djripra tilfinninga. Skáld- inu hefur tekizt að halda hisp-

x

Eimreiðin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.