Eimreiðin


Eimreiðin - 01.09.1967, Side 45

Eimreiðin - 01.09.1967, Side 45
DAGUR I AZOREYJUM 225 Landslag i Azoreyjum. gosið þar síðast. Gígur, um 200 m að þvermáli, spúði hrauni, ösku og eimyrju, svo að rokkið varð þar sums staðar um miðjan dag. í ein- um jarðskjálftanum slokknaði á hinum fræga vita í Capelinho, er lýst hafði sjófarendum öldum sam- an, þorp fóru í eyði, búpeningur var að mestu fluttur tif Portúgals. Þá sýndu Bandaríki Norður-Ame- ríku eyjarskeggjum þann dreng- skap að veita þúsundum þeirra sér- stakt innflutningsleyfi. Jarðskjáfft- ar héfdust árlangt í eynni, einn sólarhring mældust þar 400 kippir, og þeir, sem eftir þraukuðu þar, sváfu undir berum himni eða í tjöldum það árið. — Ekki eru nema um 30 ár síðan skemmtiferðaskip kom til Ponta Delgada og farþegar fóru í kynnisför um St. Mikjálsey, en ientu í svo mikfu öskufalli, að þeir urðu allir að fara í bað, er út í skipið kom. Enda eru aðeins þrjár Azoreyja taldar útbrunnar og óhultar fyrir eldgosum, þ. e. Corvo, Flores og Graciosa. Þær kirkjur, sem ég sá þetta kvöid, voru með hvítar turn- eða þakhvelfingar og einna helzt í barokkstíl, enda engar þeirra nýj- ar. Ég komst að Javí daginn eftir, að kirkjurnar eru jafnvel íburðar- meiri að innan en utan, leyna á sér. Skemmtiiegt var að sjá fornar basaltsúlur í Matriz-kirkju í Vila Franca do Campo, og skírnarfont, einnig úr basalti. Helztu bergteg- undir í eynni eru basalt og tra- chyte. Heillandi viðfangsefni trú- 15

x

Eimreiðin

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.