Eimreiðin - 01.09.1967, Qupperneq 52
232
EIMREIÐIN
gáfum við hann og Furnasdalinn
töfrafagra. Enn áttum við margt
ókannað annars staðar. Stundu
fyrir brottför skipsins skyldum við
vera á skipfjöl.
Mér virtust eyjarskeggjar við-
felldnir. Hin portúgalska lnig-
kværnni að setja sig inn í hugsun-
arhátt þeirra þjóða, er þeir segja
fyrir, og taka upp hætti þeirra,
hefur ef til vill aldrei verið met-
in að fullu. Svo að vitnað sé til
Portúgala á Indlandi, má benda
á, að stjórnmálaleiðtoginn Gandhi
synjaði fylgismönnum sínum um
stuðning til þess að innlima portú-
gölsku nýlenduna Goa á Malabar-
strönd í indverska ríkið. Gandhi
taldi innlimun óheiðarlega, þar eð
íbúar Goa nytu frelsis og menn-
ingar svo mikillar, að hann eygði
eigi í langri framtíð annað eins
Indlandi til handa.
Þau válegu tíðindi spurðust um
heiminn í des. árið 1961, að ind-
verskt herlið hefði með aðstoð
flughers og flota gert innrás í Goa
og lagt það undir indverska ríkið.
Slíkt var ekki beinlínis í anda
hins fallna foringja.
Um áttaleytið unt kvöldið létti
Gullfoss, okkar ágæta skip, akker-
um. Siglt skyldi í suðaustur í 36
stundir til annarrar portúgalskrar
eyjar, Madeira (Viðeyjar). Ég sakn-
aði St. Mikjálseyjar mjög.
,,Sem gnoðir, er mætast í myrkrum
og mælast við eina svipstund,
vér hittumst á hafi lífsins."
Einar Guðmundsson.